Skírnir - 01.01.1890, Blaðsíða 15
EEKÐ STAÍSLEYS í AEKÍKE 1887-89
15
sá sem á að taka. Jeg er fús á að þjóna honum með
mínum kröptum og viti. Bn í þetta skipti má hann ekki
hika, heldur segja já eða nei, og svo förum við heim.
Ilenry M. Stanley.
Jeg hafði rekið mig á óorðheldui manna minna við Jambuya.
Jeghafði farið þrisvar leiðina milli Aruwimiog og Albert Nyansa.
Mér rann því í skap og til rifja, þegar jeg frétti, að Erniu og
Jephson höfðu látið taka sig hönduni unl það leyti, sem þeir
liöfðu lofað að hjarga setuliðinu í Fort Bodo. 011 líkindi voru
til, að árangurinn af ferðinni yrði sá, að Jephsou yrði til í
fylki Bmins, og jsg kæmi Emins-laus til Evrópu!
Hinn 6. febrfiar 1889 kom Jephson í herbúðir vorar.
Jog varð hissa, er hann sagði: Hik og víl eru verstu fjand-
menn Emins; enginn lieldur f hann, nema hann sjálfur.
þessa hafði Jephson orðið vísari á tímanum frá 25. maí 1888
til 6. febrúar 1889. Enginn í fylkinu var búinn að koma sér
niður á neinu enn. þeir sögðu sem nú skal greina:
Emin: Ef menn mínir fara, fer jeg; ef þeir eru
kyrrir, er jeg kyrr.
Casati: Ef Emin fer, fer jeg; ef hann er kyrr, verð
jeg kyrr.
Hinir trúu hermcnn: Ef Emin fer, förum vér; ef hann fer ekki,
förum vér ekki.
Ef Mahdistarnir vaða að þeim og slátra öllu, sem fyrir
verður, þá kunna þeir að rekast í fangið á okkur, en svo
fara þeir víst að hugsa sig um vikum saman, sagi Jephsou.
Jeg sendi nú Stairs boð að koma til mín með sinu liði til
að styrkja mig. Líka voru send boð til Emins, að spyrja
um, hvort vér skyldum halda kyrru fyrir, eða ráðast inn í
fylkið til að hjálpa honum. Hann gæti tekið gufubát og
komið til vor, eða farið landveg og látið mig vita það, og
þá skyldi jeg mæta honum á leiðinni. En jeg yrði að fá
skýrt og skýlaust svar; að öðrum kosti liéldi jeg lieim á
leið.
Hinn 13. febrúar kom maður með bréf frá Emin. Hann
lá við akkeri við ströndina. Bréfið hljóðaði svo:
»Jeg kom hingað í gær á tvehn gufuskipum með menn,
sem vilja fara nxeð yður. þau oiga að sækja lleiri menu.
Meö mér eru 12 foringjar og 40 hermenn. |>8Ír munu nú