Skírnir - 01.01.1890, Síða 45
1Ý89—1889. i6
f mökum við dóttur Friðriks keisara, systur Vilhjálms keisara
annar3, en Bismarck skaut þar loku fyrir. En skömmu síðar
giptist hann söngmey, Jóhönnu Loisinger, og býr með henni
í Austurríki og unir vel hag sínum. Mönnum þótti hann vera
nokkuð fljótur að snúa bakinu við keisaradótturinni.
Uppreisnin á Krít hefur ekki í þetta sinn afrekað það,
sem eyjarskeggjar vilja, að þeir nái þjóðrétti sínum og kom-
Jst undan Tyrkjum og undir Grikkland, en þeir Salisbury og
Gladstone hafa þó báðir sagt, að sá tími kæmi og hlyti að
koma, að Krít yrði eign Grikklands, svo Krít bíður nú eptir
fylling tímans.
Brasilía varð á svipstundu þjóðveldi og keisari veltist úr
hásæti. þjóðveldismenn líktu í ýmsu eptir Frökkum 1789,
°g byltingin stafaði að nokkru leyti frá Frakklandi. Reynd-
ar hefur verið sagt, að slíkt gæti einungis átt sér stað í Ame-
nku. En þjóðveldismenn í Evrópu, einkum á Spáni og í
Portúgal, eru farnir að láta brydda á sér meir en áður.
Spánarkonungur er 3 ára gamall, og verður því langt að bíða
þess, að hann komist á legg. Portúgalskonungur er nýkominn
fil ríkis, og hefur farið slíkar ófarir fyrir Englendingum, að
Þjóðveldismönnum hefur vaxið fiskur um hrygg. Hefði Portú-
gal verið þjóðveldi, þá hefði það aldrei látið bjóða sér slíkt,
Segja þeir.
það var spáð fyrir árinu 1889, að á því mundi verða
sfórkostleg verkmannabylting. Sú spá hefur ekki rætzt, og
Þó rætzt. Verkmenn hafa ekki risið upp og lagt yfirmenn
Slna að velli, tekið eigur þeirra og skipt milli sín. En þeir
hafa gert annað, sem er betra. þeir hafa gert svo römm og
samheldin samtök sín á milli, að þeir eru sumstaðar farnir
vinna bilbug á yfirmönnum sínum, húsbændunum. J>eir
þafa unnið sigra, en vígvöllurinn flóir ekki í blóði og manna-
búkum.
A þýzkalandi höfðu verkmenn í kolanámum og öðrum
námum fram það, sem þeir heimtuðu, að mestu leyti með
Verkfalli, Keisarinn sjálf ur talaði við fulltrúa þeirra, og
Þeirn var sýndur allur sá sómi, er hæfði fulltrúum voldugs
flokks.
I f Lundúnum gerðu verkmeun í skipakvíum (docks) verkfall
°g gengu svo margir verkmenn í lið með þeim, að þeir urðu
att á annað hundrað þúsund. þeim var sent stórfó úr öll-