Skírnir - 01.01.1890, Page 95
AFÉÍKA.
95
ingjurn. jjtígar eínn þcirra sagði frá, hvernig svertingi hefði
verið flengdur og siðan fleygt í vatu til að kæla hann, kallaði
Bismarck hátt: »Get jeg gert að því? Hef jeg fleygt svert-
ingjanum í vatn ?« Hann mælti því næst fram með frum-
varpinu, og sagðist aldrei hafa sókzt eptir nýlendum, en hann
hefði látið undan vilja þjóðarinnar. Hann vildi nú halda þvf,
sem unnið væri, og ekki horfa í svona lítið fé. Wissmann
gerði þinginu grein fyrir, hvernig öllu skyldi haga, og síð-
an var frumvarpið fljótt afgreitt frá því. Wissmann
lagði strax af stað ákaflega vel búinn, og byrjaði að herja á
ströndina á sjó og landi. Herskip þjóðverja skutu sprengi-
kúlum á þorpin á landi uppi, og hann átti í smáskærum fram
með ströndinni á landi uppi. Hann átti margar orustur við
Araba, og einkum við höfðingja þann, er Busjiri hét. Loks-
ins eptir langa mæðu náði hann honum á vald sitt, og lét
þá hengja hann. A þeim hluta af austurströndinni, er Eng-
lendingar eiga, var all með friði og spekt, og var þeim því
illa við aðfarir þjóðverja. Foringi hinnar ensku flotadeildar,
sem var á vakki við ströndina, lét taka þýzkt gufuskip og
mölva vélina í því. A skipinu var doktor Peters frá þýzka-
landi, og hafði safnað sjálfboðaliði og ætlaði að fara að vinna
land undir þjóðverja í Afríku. En það var þverbannað, að
ílytja vopn inn í landið. Peters kvartaði, en hinn ouski
flotaforingi svaraði: »þú getur klagað mig fyrir þiuni stjórn,
ef þú vilt; jeg fer mínu fram«. Bismarck vildi ekki skipta
sér neitt af þessu, og þótti þjóðverjum það leitt. þjóðverjar
héldu mikinn fund í Berlín, og beiddu stjórnina að halda
betur í hemilinn á Englendiugmn, en hún daufheyrðist við,
enda var Vilhjálmur keisari þá nýkominn úr Englandsferð
sinni. Peters komst á land einhversstaðar á ströndinni og
lagði upp í land. Seiuna hofur frétzt, að hanu sé fallinn í
bardaga, eu það hefur verið borið aptur, og er uú saunfrétt,
að hann er á líti.
Vestan til í Afríku hafa þjóðverjar líka komizt í klandur
við enskt kaupmannafélag.
England og Portúgal í Afriku.
Portúgalsmenn voru fyrstir mauna til að nema land í
Suður-Afríku. þeir sigldu suður fyrir Góðrarvonarhöfðá, og
fundu sjóleið til Indlands. þeir voru þá tniklir garpar bæði