Skírnir - 01.07.1891, Qupperneq 8
8
Samgöngumál.
dannebrogsorðunnar 24. febr. Magnús Stephensen, landshöfðingi, var sæmd-
ur kommandörkrossi dannebrogsorðunnar, 2. stigi, 8. apríl og leyft að bera
heiðursmerki offiséra í heiðursfylkingunni, er forseti hins franska lýðveldis
hafði áður sæmt hann, 23. s. m. Eallgrímur Sveinsson, biskup, var
sæmdur heiðursmerki dannebrogsorðunnar s. d. Lárus Þ. Blöndal, sýslu-
maður, var sæmdur riddarakrossi dannebrogsorðunnar s. d. Tryggvi Crunn-
arsson, kaupstjöri var sæmdur heiðursmerki dannebrogsmanna 11. des.
Heiíurspeningur og verðlaun: Fyrir björgun 7 manna úr bersýnileg-
um lífsháska á sjó 12. apríl 1890 var Magnús Magnússon í Túni á Eyrar-
bakka sæmdur heiðurspeningi þeim, Bem ætlaður er fyrir björgun manna
úr sjávarháska, en hásetar hans 10 fengu 16 kr. þóknun hver, 26. febr.
Heiðursgjafir úr styrktarsjóði Kristjáns konungs IX fengu Brynjólf-
ur Bjarnason í Engey 180 kr. fyrir frábæran dugnað í jarðabótum og hýs-
iug á leigujörð og skipasmiðar (144 skip) og Einar Jónssoni Garðhúsum
í Grindavík 100 kr. fyrir frábæran dugnað í jarðabótum og fiskiveiðum.
HamgSngumál. Samkvæmt fjárlögunum fyrir þetta ár var samtals
varið um 20,000 kr. til vegabóta á aðalpóstleiðum. Aðalvegabót á kostn-
að landsjóðs var gerð í vesturhluta Húnavatnssýslu, einkum á Miðfjarðar-
hálsi og Víðidal, og var varið til þess samtals 9301 kr. 72. a. Til vega-
gerðar meðfram Ingólfsfjalli í Ölvesi og alt að brúnni yfir Ölvesá var
samtals varið 10,294 kr. 29 a. og var tæpur helmingur þess kostnaðar eða
5000 kr. veittar með fjáraukalögum fyrir 1890—91; varð sá vegarspotti
nær helmingi dýrari en á var ætlazt. Á Leirvogsá í Mosfellssveit var gerð
trébrú, mikil og ramger, 22 álnir á lengd og 4 á breidd; hún kostaði alls
um 3460 kr. Þá voru aðrir vegir bættir víðsvegar um land og allmiklu
fé (um 1100 kr.) varið til að kaupa áhöld til vegabótavinnu í þarfir land-
sjóðs þá um sumarið og framvegis.
En hið mesta mannvirki og hið veglegasta, er unnið hefir verið hér
á landi til samgöngubóta alt fram á þenna dag, er Ölvesárbrúin á Sel-
forsi, er nú var fullger í byrjun septembermánaðar. Dað er hengibrú og
er borin af 3 margþættum og digrum járnstrengjum hvoru megin, er fest-
ir eru ramlega til beggja enda í grjótbúlka við jörð niður; stöplar eru hlaðn-
ir úr límdu grjóti undir hvorumtveggja brúarsporðinum og er eystri stöp-
ullinn 14 álna langur, 6 álna breiður og alls 20 álna hár, en að eins 9*/^
alin úr grjóti, en efri hlutinn er ferföld járnsúla eða súlnagrind og ganga
strengirnir yfir hana; vestari stöpulinn er nokkru styttri, jafnbreiður og