Skírnir - 01.04.1914, Page 11
Nokkur orð um þjóðtrú og þjóðaiði Islendinga. 123
-er að vísu talið í Þjóðsögutu J. Á. en meira mun það vera
eftir gömlum skræðum af útlendum uppruna, eins og Jóla-
skrá Beda prests hins fróða, en úr almennri trú manna,
enda þótt sumt af því falli saman og hafi orðið þjóðar-
eign. Eins og kunnugt er, er mikið af þessari trú í fullu
fjöri enn í dag, að minsta kosti sumstaðar á landi hér.
9. Þá eru skepnurnar, þessar skepnur, sem menn
ibúa saman við og lifa með svo að segja nótt og dag frá
vöggunni til grafarinnar. Alidýrin: hestar, kýr og kind-
■ur, hundar og kettir, eru rótgróin í hugum manna, og er
lýst allri hirðingu þeirra og viðbúð, trú á þeim og var-
úðir við þær, bæði yngri og eldri. Síðast er þar kafli
ium önnur dýr og fugla, veiðar þeirra og not, varúðir við
þau og hjátrú á þeim. Minst er og nokkurra skorkvikinda,
en stutt er farið út í það, af því að J. Á. hefir tæmt það
efni að mestu i þjóðsögum sinum.
10. Lífsatriði. Þar er lýst venjum og trú manna við
fæðingu barna og meðferð þeirra og hvers er þar að gæta,
uppeldi þeirra og uppfræðingu. Svo koma fullorðinsárin,
mismunur karla og kvenna og hvað er athugavert við
hvort um sig, trúlofanir, giftingar, brúðkaupsveizlur, og
svo að síðustu sjúkdómar, dauðinn með feigðarboðum sín-
um og útförin. Þar kemur margt til greina og mun þó
margt vanta enn. Nokkur atriði úr þeim kafla hefi eg
ritað upp og látið prenta í »Festskrift till H. F. Fejlberg,
Sthlm 1911», bls. 373—389. Út úr efni þessa. kafla hefir
Sæm. Eyjólfsson ritað ritgerð um brúðkaupssiði, sem prent-
uð er í Tímar. Bókm.fél. 16., 92—144.
11. Heilsufar og lœkningar. Þar er lýst heilsufari
manna fyr á öldum og fram undir þetta, orsökum þess,
hvað því var áfátt og svo tilraunum alþýðu til þess að
lækna kvillana, þegar hvergi var lækni að fá og enga
hjálp, hvað sem við lá. Eg hefl náð saman heillangri
lækningabók eftir skræðum þessara skottulækna, auk þess
sem eg hefl náð saman af læknisráðum, 3em til er gripið
jafnvel sumstaðar enn í dag.
12. Skemtanir. Um skemtanir íslendinga heflr Ólafur