Skírnir - 01.04.1914, Page 32
144 Unga fólkið og atvinnuvegir landsins.
sem svarar 10 hestam af dagsláttu þegar vatnið er hóf-
legt. Hún er rétt við Flóann og jarðvegurinn var þar
upprunalega engu betri en í Flóanum. Þetta eitt er ær-
in sönnun fyrir því að hér sé ekki um loftkastala að ræða.
Auðœfi Vér höfum séð að góðar horfur eru á því að
sveitannci. Flóinn geti bætt við sig 4—5000 mönnum
þegar tímar líða og gefið 800 heimilisfeðrum
sjálfstæða góða atvinnu, hús og heimili fyrir sig og sina.
Þetta segir þó ekki mikið ef sjá skal fyrir 1000 manna
viðbót á ári hverju. En Flóinn er aðeins eitt svæði af
mörgum sem rækta má á sama hátt, og gæfist Flóaáveit-
an vel myndu aðrar sveitir koma á eftir. Það er óhætt
að segja að Flóinn myndi þá tífaldast og 8000 nýbýli
koma í stað 800. Og þó hefi eg hér aðallega engjarækt-
ina fyrir augum. Hitt er auk þess víst að túnræktin á
eftir að aukast stórlega hvað sem öllum áveitum líður, að
minsta kosti tvöfaldast. Þessari auknu framleiðslu fylgdi
eflau8t að jörðum yrði skift og býli fjölguðu þó seinna
gengi. Það er okkur sjálfum að kenna ef sveitir vorar
geta ekki tekið við öllum sem í sveit vilja vera áratug
eftir áratug. Og þær geta boðið alt annað en vinnumensku,
sem mörgum er þó góð og farsæl atvinna. Þær geta boð-
ið þúsundum manna að verða sjálfstæðir bændur og af-
komu sem þoli fyllilega samanburð við nágrannalöndin.
En erfitt verður að hrinda þessu áleiðis ef ekki nýt-
ur aðstoðar þingsins. Hér er að tala um svo stór íræði
að bændur brestur bæði fé og áræði til þeirra, jafnvel þó
þau væru mjög arðsöm. Það er ólíku auðveldara þó dýrt
sé að leggja saman í togara en að veita á Flóann. í öðr-
um löndum heflr það og gengið svo að stjórnirnar hafa
orðið að beitast fyrir stórum áveitum (Egiptaland, Indland
og víðar) eða afveitum (Holland).
Sjávarútvegur. Eins og áður er getið virðist alt benda
til þess að togaraútvegurinn sé eina út-
vegsgreinin sem sé i uppgangi, sú sem gefur mesta at-