Skírnir - 01.04.1914, Page 33
Unga fólkið og atvinnuvegir landsins.
145
•vinnu og mest í aðra hönd. Ef stjórn á að styðja sjávar-
■útveg þá er að styðja togarana. En hvað getur stjórn
gert í þessa átt?
Eg get ekki betur séð en að stjórn standi hér miklu
lakar að vígi en í landbúnaðarmálum. Það er aðallega
tvent sem ætlast má til af henni: Það verður að gæta
þess að löggjöfln vinni henni ekki skaða með óhentugum
lögum eða ósanngjörnum sköttum. Þá getur og stjórnin
ef til vill greitt fyrir því að útgerðarmenn eigi sæmilega
greiðan aðgang að lánsfé með sem beztum kjörum. Hinu
hefl eg ekki trú á, að stjórnin eigi að sækja mjög fast að
fjölga skipum t. d. með stórlánum í þessu augnamiði. Það
yrði sennilega til þess að fleiri legðu út í togaraútgerð en
færir væru til þess, að mennirnir á skipunum yrðu miður
valdir og mætti þetta verða útvegnum að tjóni. Togara-
útvegurinn er nú kominn á þann rekspöl að ef hann
■borgar sig vel þá vex hann hraðfara af eigin ramleik, en
fari hann að bera sig illa er hverri stjórn ofætlun að
halda honum uppi.
Sjór og sveit. Það munu margir ætla að sjávaraflinn gefi
ólíku meira í aðra hönd en sveitabúskap-
ur. Það bendir margt á að svo sé ekki eða þurfi ekki
að vera. Eg held að sú hafl verið reynsla undanfarandi
alda að sjávarmenn hafl yfirleitt hvorki verið ríkari né
liðið betur en flestum sveitamönnum. Segja má að nú sé
þetta breytt eftir að pokanætur og botnvörpur hafa kom-
ið til sögunnar. Eigi að siður, ef áætlun manna um Flóa-
áveituna fer nærri lagi, þá er það fljótséð að enginn tog-
ari getur ávaxtað svo féð sem til hans gengur eins og
Flóamýrarnar.
Annað atriði er og eftirtektavert: Sjávaraflinn verð-
ur líklega ætíð svipulli en sveitabúskapurinn, meira háður
alls konar áhrifum sem vér ekki höfum vald yfir og fljót
eru skipin að líða undir lok ef gróðinn hrekkur ekki vel
til þess að endurnýja þau, en vel ræktað sveitabýli, sem
nýtur t. d. stuðnings af góðu flæðiengi, getur staðið meðan
10