Skírnir - 01.04.1914, Page 36
148
Unga fólkið og atvinnuvegir landsins.
iðnaði. í Sviss eru 19% af öllum iðnaðarvörum heimilis-
iðnaður, í Austurríki 34%, í Norvegi 25%. Heimilisiðn-
aðurinn lifir enn góðu lífi víðsvegar um lönd og vér stönd-
um ekki alls kostar ver að vígi en allir aðrir.
Fyrir nokkru var stofnað félag hér í Reykjavík til
þess að efla heimilisiðnað. Ef það hefði eitthvað á 1 i t-
1 e g t fyrir stafni, væri alþingi skylt að styrkja það. Þá
gæti og eflaust komið til tals að leggja nokkurn toll á
sumar iðnaðarvörur, t. d. tilbúin föt, og efla með því iðn-
að í landinu.
Mér kemur ekki til hugar, að heimilisiðnaður verði
út af fyrir sig stór atvinnuvegur fyrir unga fólkið, en eg
held að hann geti orðið því og öllum landslýð góður
stuðningur og auka-atvinna eins og hann hefir verið frá
landnámstíð, svo framarlega sem vér kunnum með að fara.
Yfirlit. Ef vér lítum yfir það sem sagt hefir verið hér
að framan, eru aðalatriðin þessi:
1) Sem stendur er landið of lítið, rúmar ekki unga
fólkið, sern árlega bætist við, nema það sé óvenju lítilþægt.
2) Vér getum áreiðanlega stækkað landið, gefið öll-
um atvinnu, sem þess þurfa, og fjöldanum öllum sjálf-
stæða stöðu.
3) Vissasti og farsælasti vegurinn til þessa er aukin
ræktun landsins, sveitabúskapur en ekki sjávarútvegur,
að minsta kosti fyrsta áratuginn.
4) Þrátt fyrir alla kosti túnræktarinnar, og þeir eru
miklir, á landstjórnin að láta engjarækt sitja í fyrirrúmi
fyrir öllu öðru. Hún ein getur gjört stórfelda breytingu
á sveitabúskapnum á stuttum tíma.
5) Engjarækt í stórum stíl er óframkvæmanleg,
nema með öflugri aðstoð þingsins. Hún er helzta verkefni
þess í atvinnumálum.
Guðm. Hannesson.