Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.04.1914, Side 38

Skírnir - 01.04.1914, Side 38
150 Kveðjur. stundum á bakið fyrir honum. Það er uppgjöf allrar varnar. Að því er Livingstone segir, heilsa Batoka-Negrar þannig, að þeir kasta sér á bakið, velta sér af einni hlið- inni á aðra og slá á lærin. Þeir láta með því í ljós undir- gefni sína og fögnuð. Á Vináttueyjunum heilsa alþýðu- menn höfðingja sínum með því að fleygja sér fyrir fætur honum og setja fót hans á hnakka sér. Og með ýmsum þjóðum, t. d. Assýríumönnum og Egiptum hinum fornu, hefir konungum verið heilsað með því að falla þeim til fóta. í Síam og Dahome skríða menn fyrir konung. Næsta stigið er knéfall. Það er áfangi á leiðinni á nasirnar. Sumstaðar, til dæmis í Kína, er knéfallinu samfara að beygja höfuð sitt til jarðar og því oftar sem meiri lotning er sýnd. í Biblíunni sjáum vér að slík end- urtekning hafði sömu þýðingu með Gyðingum. Jakob laut sjö sinnum til jarðar unz hann kom fast að Esaú bróður sínum (1. Mós. 33, 3.). Að knéfall tíðkaðist við hirð Nor- egskonunga á 13. öld sézt af »Konungsskuggsjá«: »En ef hann (þ. e. konungurinn) heimtir þik nærri sér ok vill tala við þik leyniliga, þá sezk þú á kné fyrir hánum svá nærri, at þú megir vel hlýða hans einmælum, ok þá skikkjulauss«. — Að krjúpa á annað knéð í stað beggja er nokkur stytting á athöfninni, og þegar konur hneigja sig í hnjáliðum, eða þegar karlmenn fyrrum brugðu fæti aftur (á þýzku Kratzfuss), þá er hvorttveggja leifar af kné- fallinu. Enn síðara stig er það að gera aðeins bendingu til að tákna að maður sé fús á að fleygja sér til jarðar, eins og Arabar, er rétta höndina til jarðar og leggja hana svo á munn sér eða enni. Og þegar menn hneigja sig nú á dögum hver fyrir öðrum, þá er lotningin orðin svo hógleg sem hún getur orðið, og þar sem hún er af beggja hálfu, má svo að orði kveða að menn standi jafnréttir þó þeir haldi þessum sið. Sömu lotningarmörk og menn sýndu konungum sín- um sýndu þeir og guðunum og fulltrúum þeirra og líknesk- jum. Abraham féll fram á ásjónu sína er Jahve gerði sáttmálann við hann. Nebúkadnezar konungur féll fram á
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.