Skírnir - 01.04.1914, Page 61
Pereatið 1850.
173
Helgi biskup hafi gengið mest fram í því að eggja eða
skipa rektor að heimta af piltum að þeir væru í bindindi.
Piltar höfðu ákveðið fund í félaginu kl. 9 að kveldi
þessa sama dags (14. jan.), og rektor hafði boðað þá 7,
frávillingana, heim í hús sitt kl. 8, til þess að gera enn
eina tilraun til þess að fá þá til að ganga inn í félagið
aftur áður en bindindisfundurinn byrjaði, »en kl. 5 varð
rektor þess vís, að piltar ætluðu að halda undirbúnings-
fund í salnum. Hann og Jens Sigurðsson fóru þá uppeftir
og staðnæmdust fyrir framan grindurnar1); fundur var þá
ekki enn byrjaður, og piltar, þar á meðal þeir 7, voru á
reiki fram og aftur um salinn. Aðalmálsvari þessara 7
var Steingrímur Bjarnason. Hann gekk til rektors og
sagði, að þeir væru fúsir að mæta á þessum fundi, ef
rektor vildi tala við þá. Rektor lét hann þá skilja, að hann
áliti það miður vel við eigandi, að þeir mættu á þessum
fundi, og að hann vildi heldur, eins og um talað hefði
verið, fá að tala við þá einslega áður; og tjáðu þeir sig
líka fúsa til þess. En þá gekk til þeirra Arnljótur Ólafs-
son, og spurði með talsverðum þótta, hvort þeim væri
ekki leyfilegt að halda fund þarna. Rektor kvaðst ekki
hafa neitt á móti þvi, er hann og Jens kennari væru þar,
þeir mættu byrja fundinn. En þá tóku þeir Arnljótur og
Stefán Thorsteinsen2) að tala um, að fundafrelsi væru
pólitísk réttindi, og hinn fyrnefndi lét það ótvírætt í ljós,
að návist kennaranna væri þeim ógeðfeld. Þeir héldu
þó áfram veru sinni utan grindanna, en þá hlupu piltar
út úr salnum, og úr skólanum og upp að Skólavörðu og
héldu þar fund, því stjörnubjart var úti og blíðalogn«.
Kl. 8 um kveldið komu þó þeir 7 í hús rektors ásamt
Stefáni Péturssyni (Stephensen)3), sem kvaðst eftir ítrek-
aðri áskorun biskups, en þó nauðugur, hafa gengið aftur
*) I salimm var alþingi haldið frá byrjun til 1879, voru þvi settar
grindur fyrir áheyrendur yfir þveran salinn sunnanverðan frá anstri
til vesturs.
a) sonur Jóns landlæknis, varð cand. phil., drnknaði hér við land 1869.
s) Siðast prestnr i Yatnsfirði f 1900.