Skírnir - 01.04.1914, Síða 63
Pereatið 1850.
175-
indi, sem um er getið í fyrstu grein, skal rektor, þá hann
verður þess vís, áminna hann einslega; brjóti sami læri'
sveinn aftur, skal áminna hann í viðurvist skólans kennara.
En ef hann brýtur enn í 3ja sinni, er hann rækur úr skóla.
Reykjavík, þ. 14. janúarm. 1850.
Undir skjali þessu stendur eitt nafn yzt til hægri-
handar »Jón Þorleifsson«. Hinir allir neituðu því við
nafnakall að gangast undir lögin. Sveinbjörn rektor seg-
ist einungis hafa h v a 11 pilta til að ganga undir lög
þessi, en Sigm. Pálsson segir fortakslaust, að hann hafi'
s k i p a ð piltum að gera það. Lög þessi voru eigi a&
eins mjög ströng, svo að það gat fljótlega valdið brott-
rekstri úr skóla að brjóta þau, heldur voru þau að því-
leyti þyngri en eldri bindindislögin, að áður máttu menn
drekka öl og afbrent rauðvín, en eftir þessum lögum var
algerlega bannað að neyta nokkurs áfengis. Þegar piltar
að Jóni Þorleifssyni einum undanskildum, neituðu að und-
irskrifa lögin, lýsti rektor því yfir, »að hann og kennar-
arnir álitu leynifundi pilta út af fyrir sig vera orsökina
til þessara óheppilegu úrslita málsins, að bannaði þeim
alvarlega allar samkomur, án hans leyfis og án návistar
hans sjálfs eða einhvers kennaranna. En þá fengu þeir
rektor og kennararnir það kalda og óþjála svar frá Arn-
ljóti Olafssyni: »Náttúran bannar þó slíkt ekki«. Að
þessu búnu lýsti rektor yfir því, að kenslu yrði hætt
þangað til útgert yrði um það, hverjir ættu að hlýða,
kennarar eða piltar.
Næsta dag, 15. janúar, skýrði rektor stiftsyfivöldunum
frá öllum málavöxtum, kvað þann uppreisnaranda nú ríkja
í skólanum, að annaðhvort yrði að bæla hann niður með
festu og einurð, eða skólinn hlyti að líða undir lok vegna
óstjórnar; færði hann ýms dæmi upp á þrjósku pilta við
einstaka kennara, ólæti og spell, svo sem að nýlega hefðu
verið brotnar rúður fyrir 7 ríkisdali í skólanum, án þess
hepnast hefði að uppgötva þá seku, því piltar héldu sam-
an sem einn maður og framseldu eigi þá seku, en eink-
um og sér í lagi þá kvartaði hann yfir neitun þeirra að