Skírnir - 01.04.1914, Page 82
194
Hallgrimur Pétursson.
fyrir það hina miklu andríkishöfunda. Trú er annað og
meira en trúarfræði. Eins og fyrrum var sagt, að allar
götur lægi til Rómaborgar, svo Jiggja og allir vegir sál-
arinnar sanna og rétta leið ef lifandi þrá eftir guði ræð-
ur ferðinni. Þannig rataði týndi sonurinn torleiðið heim>
til föðursins, og getur þó líkingin þess eins um trúfræði
hans, sem felst í orðunum: »Eg vii taka mig til og fara
heim til föður rníns*. Það var nóg. Alföðurnum himn-
eska er nóg að treysta — og honum v e r ð a menn að
trevsta, þótt ekki verði fyr en fokið er í öll skjól og ekk-
ert eftir af heimsins gæðum og vísindum nema drafið svín-
anna. Þessa trúar- og lífsskoðun hefir og vort mikla trúar-
skáld gjörla þekt, þótt hnnn oftar fylgdi kenningarkröfum
sinnar tíðar — kendi og boðaði í tíma og ótíma hina kirkju-
legu sáluhjáparleið gegnum Krists fórnardauða. Fórnar-
eða friðþægingartrúin stafar að vísu frá bernskutíð þjóð-
anna, því að mannkynið hefir jafnan ósjálfrátt fundið til
síns óumræðilega skorts á þeirri hrósun, sem fyrir guði
gildir. Sú trú finst og fjöidanum eðlileg og ómissandi.
En hinsvegar þykir enginn efi á, að drottinn vor og meist-
ari boðaði enga trúarfræði, heldur kendi eins og sá er
vald hafði, kendi framar öllu öðru guðs eilífa faðerni og
hvernig kærleikans almáttugi faðmur stendur opinn öll-
um hans börnum, skilyrðislaust. Þessi skilningur
er mjög algengur á vorum dögum, og kalla margir hinir
frægustu kennimenn hann aðal-fagnaðarerindi Jesú. Þykir
nú mörgum úr vöndu að ráða, einkum þeim, sem vanir
eru að festa hugann fremur við lögfesta trúarfræði en
sjálfa trúna, sem allan efa sigrar. Og sönn og lifanditrú
talar í sálmum H. P., hvaða trúarbúning sem orð hans
eru íklædd. Fyrst og síðast talar hann til vor og vottar
sitt lifandi elskusamltand við endurlausnara sinn. Hann
mátti vel segja með postulanum: »Eg lifi, þó ekki eg,
heldur lifir Kristur í mér«.
Að svo mæltu skulum vér að endingu stuttlega virða
fyrir oss píningarsálmana.
Tildrög þess að hann réðist í það stórvirki, að yrkja