Fjölnir - 01.01.1843, Page 51

Fjölnir - 01.01.1843, Page 51
51 stunduni ; Jietta kjemur auftsjáanlega af J)ví , að sjórinn jiarf nokkra stund til aft streíma frá n og m til Z og N. Mishæðir á sjáarbotni, straumar í höfum, strandalögunin og margt annaf) eíga eínnig mikjinn þátt í að tálma hreíf- íngu úthafsins. Til þessa má telja mörg dæmi; svo er t. a. m. á Frakklanz ströndum, að mikjill tímamunur er þar á flóði og fjöru í höfnum, þótt þær hvurkji sje mjðg tjarri hvur annarri nje liggji Iángt frá úthafi. Við “Dun- kirken” t. a. m. kjemur ekkji ílóð tirr enn 12 stundum seínna enn túngl liefir verið á hádeígjishaug; við “St. Malo” (-18° 39' norðurbreíddar) kjemur það 6 stundum seínna; enn við Góðvonarhöfða er hátlóð komið 1 '2 stundu seínna enn tiingl hefir verið á hádeígjisbaug. Vjer höfum áður sagt, að á öllum þeím stöðum, er Iiggja á sama hádeígjislmug og Z og N , verði flóð og fjara um sama leíti; enn því meír og minna lier þar á sjáarföllum , sem þeír staðir eru nær eður ljær Z og N. Nú fjarlægjast aldreí sól og túngl miðhaugjinn mjög mikjið, og af því leíðir, að staðirnir Z og N, þar sem ílóð verður mest, eru ætíð innan hvarfbauga (á hitabelti jarðar), og sjáarföll minka því meír, sem nær dregur heímskautunum. Jetta sannar reínslan. I Austurheími og viö hitastrendur Vesturheims eru sjáarföll vön að vera allmikjil, þótt íms atvik aukji þau og ástundum annarstaðar; svo er um höfn- ina við “St. Malo”, að fjöruborð er þar 50 fet rjett mælt upp og niður. I Vesturhafinu eru sjáarföll miklu minni; firir Hamhorgarclfu hækkar og lækkar stundum ifirborð sjáar um 25 fet; við norðurstrendur Noregs ber hvurkji á /lóði nje fjöru. Nú viljum vjer að síðustu heímfæra það , sem hjer hefir verið sagt um flóð og fjöru, til þeírra atburða, sem oss eru bezt kunnir og mcst forvitni á að gjeta þekkt grandgjæfilega og reíknað oss til firirfram. Vjer viljum 1»

x

Fjölnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjölnir
https://timarit.is/publication/61

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.