Fréttir frá Íslandi - 01.01.1878, Side 3
LANDSTJÓRN.
3
vcrið til þess að semja frumvarp til laga um þetta mál, og sem
um er getið í fyrra árs frjettum. Nefndin kom saman í Keykja-
vík fyrst í ágúst, og lauk starfi sínu að mestu á þeim mánuði.
Fyrst gjörði nefndin ýmsar breytingar við brauðamatið, er henni
þótti við eiga og vera nauðsynlegar, og hækkaði það eigi all-
lítið á sumum stöðum, sjer í lagi þar sem henni þótti hlunn-
indi prests-setranna veraof lágt metin. þ>á samdi nefndinfrum-
varp til laga um nýja skipun prestakalla og kirkna. Til þess
að gjöra hin smærri brauð nokkurn veginn lífvænleg, lagði
nefndin það til, að sameina nokkur brauð, þar sem hún áleit að
því yrði við komið. Skyldi bæta hin fátæku brauð annaðhvort
með því að leggja til þeirra annað brauð eða part af brauði,
sem ætti að leggjast niður, eða með því að sameina hið niður-
lagða brauð við eitt af hinum betri brauðum, og leggja
aptur frá hinu sameinaða brauði ákveðna peningaupphæð til
hinna fátæku brauða. Sumstaðar skyldi fátækt brauð fá tillag
frá góðu brauði, án þess það góða brauð fengi uppbót í staðinn.
Nefndin ætlaðist til, að leggja skyldi niður 29 brauð, og stofna
aptur þrjú ný, eða með öðrum orðum að fækka prestaköllum í
landinu um 26, og hafa þau 144 í stað þess að þau eru nú
170. Tekjur hinna niðurlögðu brauða töldust nefndinni 20836
kr. 32 a. En auk þessarar upphæðar áleit nefndin að þurfa
mundi 7600 kr. til þess að gjöra öll brauð viðunanleg að tekj-
um. |>essar 7600 kr. lagði nefndin til að teknar yrðu úr lands-
sjóði. Brauð þau, sem nefndin áleit að ekki yrðu bætt með
sameiningum, en þyrftu að fá tillag annaðhvort frá öðrum brauð-
um eða úr landssjóði, töldust 41. pessar brauðabreytingar
skyldu komast á jafnóðum og brauðin losnuðu. Kirkjur skyldu
og lagðar niður á stöku stað, ef svo semdist við kirkjueiganda,
annaðhvort nú þegar, eða þá er því yrði við komið. Að því er
kom til breytingar á tekjum prestanna, lagði nefndin það til,
að tíund til prests og dagsverk yrðu af numin, en upphæð
þeirri í álnatali, sem gjöld þessi hatá numið í 5 ár (1873—1878)
skyldi jafna niður á gjaldþegna eptir efnum þeirra og ástandi.
Minni hluti nefndarinnar (J>órarinn Böðvarsson og Einar Ás-
mundsson) vildi einnig af nema lambsfóður og offur, og jafna
einnig þeirri upphæð niður. Öll nefndin vildi losa presta við
l*