Fréttir frá Íslandi - 01.01.1878, Blaðsíða 9

Fréttir frá Íslandi - 01.01.1878, Blaðsíða 9
LANDSTJÓRN. 9 er gekk úr eptir hlutkesti; í norður- og austuramtinu Arnljót- ur prestur Ólafsson á Bægisá, í stað Jóns alþingismanns Sig- urðssonar á Gautlöndum, er þar gekk úr, og í vesturamtinu Torfi bóndi Bjarnason í Ólafsdal, í stað Guðmundar prófasts Einarssonar á Breiðabólstað, er aptur var kosinn varamaður. íyfirskattanefndir í kaupstöðum voru skipaðir af landshöfðingja: ÍKeykjavík: Magnús assessor Stephen- sen, Halldór yfirkennari Friðriksson og Lárus assessor Svein- björnsson, og til vara Geir dannebrogsmaður Zoega; á ísa- firði: Holm verzlunarstjóri, Nielsen bókhaldari og Símon Alex- íusson verzlunarstjóri, og til vara Guðbjartur Jónsson, verzlun- arþjónn; á Akureyri: Möller verzlunarstjóri, Jón Stefánsson timburmeistari og Jensen gestgjafi, og til vara J>orgrímur læknir Jónsson. Embættaskipunin var þannig: Yfirdómaraembætti við landsyfirrjettinn var 12. apríl veitt Lárusi Eðvarði Sveinbjörnssyni, bæjarfógeta í Keykjavík og sýslumanni í Gullbringu- og Kjósarsýslu. Til þess að gegna bæjarfógetaembættinu fyrst um sinn var landshöfðingjaritari Jón Jónsson settur 3. júní, en til þess að gegna sýslunni var s. d. settur málaflutningsmaður Guðmundur Pálsson, þangað til bæði embættin voru veitt 16. ágúst: bæjarfógetaembættið Eggert Theódór Jónassen, sýslumanni í Mýra- og Borgaríjarð- arsýslum, og Gullbringu- ogKjósarsýsla kandídat Kristj- áni Jónssyni. 27. sept. var málaflutningsmaður Guðmundur Pálsson settur til að gegna Mýra- og Borgarfjarðarsýsl- u m, þangað til hann fjekk veitingu fyrir þeim 6. nóvember. Snæfellsnessýsla var 12. apríl veitt kandídat Sigurði Jóns- syni. Sýslumaðurinn í Árnessýslu, forsteinn Jónsson, fjekk 14. ágúst lausn frá embætti, og var Árnessýsla aptur veitt 6. nóvember Stefáni Björnssyni, sýslumanni í ísafjarðarsýslu. 29. nóv. voru sýslumennirnir forsteinn Jónsson og Stefán Björns- son settir til að gegna fyrst um sinn embættum þeim, er þeir höfðu áður haft. 5. okt. var landshöfðingjaritari Jón Jónsson settur málaflutningsmaður við landsyfirrjettinn. Prófastar voru settir: í Barðastrandarprófasts- dæmi Steingrímur Jónssou, prestur í Garpsdal, 6. maí, og s.

x

Fréttir frá Íslandi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir frá Íslandi
https://timarit.is/publication/95

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.