Fréttir frá Íslandi - 01.01.1878, Blaðsíða 24
24
MENNTIR.
vanta hjer á landi. feir tókust þetta á hendur, og gátu komið
út einu hepti eða hálfum árgangi fyrir árslokin. Tímarit þetta
kalla þeir Kirkjutíðindi fyrir ísland, og er ætlazt til, að
það hafi inni að halda ritgjörðir um ýmsar greinir guðfræðinn-
ar; um guðfræðisbækur og kirkjuleg rit, er út koma; um guð-
fræðisnám og kennslu; um stjórn andlegra málefna, og annað, er
að því lýtur; um ýmislegt, er snertir safnaðarlífið, og auk þess
stutt æfiágrip og eptirmæli merkra kennimanna og fl. Að þessu
sinni hafði rit þetta eigi annað meðferðis, auk inngangsorða,
cn álitsskjal brauða- og kirknamálanefndarinnar, sem hjer að
framan hefur minnzt verið. — í fyrra árs frjettum er þess
getið, að þá (1877) var gefin út Kristilegur barnalær-
dómur eptir lúterskri kenningu, saminn af Helga Hálfdánar-
syni prestaskólakennara. Mörgum fjell kver þetta þegar svo vel
í geð, að þeir óskuðu, að það yrði löggilt sem kennslubók í trú-
arbrögðum handa börnum; en áður en það yrði gjört, leitaði
biskup álits prófasta og margra presta um það. Flestir þeirra
luku á það lofsorði, og óskuðu, að það yrði sem fyrst löggilt, og
sumir gjörðu við það nokkrar athugasemdir. Höfundurinn end-
urskoðaði það þá, og gjörði við það nokkrar smábreytingar.
Síðan var það af stjórninni löggilt, eða leyft að nota það við
trúarbragðakennslu barna ásamt Balslevs og Balles barnalær-
dómsbókum. Svo var það aptur út gefið 1878 með breyting-
um höfundarins, og framan við það prentuð Fræði Lúters
h i n m i n n i, í nýrri þýðingu, lagaðri eptir þýzka frumritinu.
Skömmu síðar kom út Stuttur leiðarvísir til að spyrja
bö rn eptir barnalærddmi sjera Hclga Hálfdánarsonar, eptir doktor
Pjetur Pjetursson. Leiðarvísir þessi, sem víðast er mjög ljós
og auðveldur, og vandaður að öllum frágangi, er ætlaður til
þess að vera til hliðsjdnar barnakennendum við kennslu trúar-
bragðanna, og jafnframt til þess að vekja greind barnanna og
eptirtekt þeirra á því, er þau nema. í því skyni er hver grein
í barnalærdóminum liðuð sundur í greinilegar spurningar, og
oinnig leidd athygli að því, í hverju sambandi ritningargrein-
arnar standa við hverja lærdómsgrein. Með þessum tveimur
kverum, barnalærdóminum og leiðarvísinum, er lögð góð undir-
staða undir kristindómsþekkingu matina að líkindum um lang-