Fréttir frá Íslandi - 01.01.1878, Blaðsíða 25

Fréttir frá Íslandi - 01.01.1878, Blaðsíða 25
MENNTIK. 25 an aldur, og má kalla, að því efni, sem lengi hefur þótt ábdta- vant, sje nú komið í gott horf. Af öðrum guðsorðabókum, sem nú komu út, má nefna Bænakver, eptir Pál Jónsson, prest á Völlurn í Svarfaðardal. þ>að eru daglegar bænir út af drott- inlegri bæn, vikubænir á morgna og kveld, bátíða- og helgi- dagabænir, missiraskiptabænir og sjómannabæn. Bænir þessar, sem eru mjög hjartnæmar og í sannkristilegum anda, eru ætl- aðar til að bæta úr skorti þeim, sem þótt hefur á bænum, við húslestra. þ>á var og út gefin Prjedikun á 4. sunnudag eptir trínitatishátíð, eptir Jón biskup Vídalín, gefin út af Jóni Straumfjörð. Ræða þessi, sem eigi hefur verið áður prentuð, er um lagarjettinn, og mjög sköruleg og skorinorð, eins og þeim ræðusnillingi var títt. J>á voru einnig gefnar út tvær ræður aðrar: Ræða á gamlárskveld 1877, eptir kandí- dat Magnús Andrjesson, og: Ræða á 4. sunnudag eptir trínitatis, eptir dómkirkjuprest Hallgrím Sveinsson, báðar eptir ósk áheyrandanna, er þótti sjerlega mikið til þeirra koma. Hjer að auki voru prentaðar líkræður eptir ýmsa menn. Enn má geta þess, að gefnar voru út Sögur úr biflíunni með myndum ásamt þrem greinum trúarjátningarinnar, þýddar úr dönsku og vel vandaðar. Af eldri guðsorðabókum voru gefnar út Vorhugvekjur Pjeturs biskups Pjeturssonar, 2.útgáfa, og Passíusálmar Hallgríms Pjeturssonar, 31. útgáfa. í stjórn- og lögfræði voru færri rit gefin út, en þó nokkur. Má fyrst til þess nefna Frumvarp tillandbún- aðarlaga fyrir Island, samið af minni hluta nefndar þeirrar, er skipuð var samkvæmt konungsúrskurði 4. nóv. 1870 til að semja ný landbúnaðarlög fyrir ísland, yfirdómara Jóni Pjeturssyni. Frumvarp þetta er allmikill lagabálkur, og nær yfir töluvert fleira en frumvarp meiri hluta nefndarinnar. |>að er mjög skarplega og þjóðlega hugsað, og sniðið sem mest eptir fornum íslenzkum lögum. Einnig má telja Brjef til Islend- inga um mál vor erlendis, eptir íslending. Brjef þessi hafa einkum inni að halda greinir úr dönskum blöðum um ýms íslenzk mál og umræður á fólksþinginu út af verzlunarmálum og skattamálum íslands. Eru brjef þessi einkar-fróðleg í sinni röð. þ>á má enn nefna Alþingistíðindi 1877, og

x

Fréttir frá Íslandi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir frá Íslandi
https://timarit.is/publication/95

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.