Fréttir frá Íslandi - 01.01.1878, Page 8

Fréttir frá Íslandi - 01.01.1878, Page 8
8 LANDSTJÓRN. amtinu, en af áliti norður- og austuramtráðsins hefur ekki frjetzt. Að öðru leyti er ekkert sjerlegt að segja frá fundum amtsráða eða sýs 1 unefnda. Viðvíkjandi sveitamálum er heldur ekkert sögulegt. Á hreppaskipun var eigi gjörð önnur breyting en sú, að Álpta- neshropp var skipt í tvo hrcppa um sóknamótin milli Garða- og Bessastaðasókna. Hinir nj'ju hreppar nefnast Garðahreppur og Bessastaðahreppur. Áð því er snertir opinber gjöld má geta þess, að jafn- aðarsjóðsgjaldið lækkaði nú mjög sunnan- og vestanlands meðal annars af því, að varðkostnaðurinn fór minnkandi. í suðuramt- inu var það nú 18 aurar af hverju tíundarbæru lausafjárhundr- aði, en í vesturamtinu 25aurar; í norður-og austuramtinu var það 20aurar. Á verðlagsskráarumdæmun um varð sú breyt- ing, að Rangárvallasýsla fjekk leyfi stiptsyfirvaldanna til þess að hafa verðlagsskrá út af fyrir sig. Meðalverð allra meðal- verða var nú eptir verðlagsskránum á þessa leið: í Skaptafellssýslu........................48 aur. alinin - Rangárvallásýslu........................59 — — - hinum sýslum suðuramtsins .................59 — — - Mýra- Snæfellsness- Hnappadals og Dalasýslum 61 — — - Barðastrandar- og Strandasýslum ... 59 — — - ísafjarðarsýslu og ísafjarðarkaupstað ... 63 — — - Húnavatns- og Skagafjarðarsýslum ... 56 — — - Eyjafjarðar- og fingeyjarsýslum og Akureyr- arkaupstað..............................54 — — - Múlasýslunum............................57 — — Kosningar til alþingis fóru nú fram í 2 kjördæmum. í Skagafjarðarsýslu urðu nú auð bæði þingmannasætin, þar sem annar þingmaðurinn (Jón Blöndal) dó, en hinn (E. B. Guðmundsson) sagði af sjer alþingismennsku. I stað þeirra voru aptur kosnir 19. sept.: Eriðrik bóndi Stefánsson í Ytra- Vallholti og Jón ritari Jónsson í Reykjavík. í Strandasýslu var í október kosinn alþingismaður Björn ritstjóri Jónsson í Reykjavík í stað Torfa Einarssonar, er andaðist haustið áður. í amtsráð voru kosnir: í suðuramtinu Skúli presturGísla- son á Breiðabólstað, í stað Jóns prófasts Jónssonar á Mosfelli,

x

Fréttir frá Íslandi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir frá Íslandi
https://timarit.is/publication/95

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.