Fréttir frá Íslandi - 01.01.1878, Qupperneq 20
20
ATVINNUVEGIR.
Erlendir aflamenn lágn við land að vanda, og þóttu
helzt til nærgöngulir, en af þeira hafa að öðru leyti í þetta sinn
farið litlar sögur.
Hjer raá geta um sjóhrakning, sem með rjettu þykir
annálsverður. Gufuskip frá Túnsbergi í Noregi lá um sumarið
nálægt Grænlandi við selveiðar. Bátur frá skipinu villtist í
þokuveðri, og fundu bátsmenn, er voru 5 að tölu, eigi skipið
aptur, og vissu eigi, hvað þeir fóru. Hröktust þeir þannig um
fulla sjö sólarhringa. Nesti höfðu þeir að eins til tveggja daga,
en engan drykk. Tvo seli böfðu þeir í bátnum; á þeim hráum
lifðu þeir, og svo nokkrum fuglum, er þeir skutu sjer til mat-
ar. Engin segl höfðu þeir önnur en skinnin af selunum. Loks-
ins bar þá eptir 7 sólarhringa að Kefiavík á Snæfellsnesi. Voru
þeir þá mjög þrekaðir, en hresstust brátt og sigldu úr Stykkis-
hólmi.
Um náma er fátt að segja. Skozkur maður, að nafni
Paterson, hefur verið að yrkja brennisteinsnámana í Krýsi-
vík. Kalkbrennslunni í Reykjavík liefur verið haldið áfram.
Af v e r z I u n i n n i er hvorki gott nje mildð að segja. Hún
var enn sem undanfarin ár að mörgu leyti erfið og óhagfelld
landsmönnum, og yfir höfuð virtist vera fremur deyfð í öllum
verzlunarviðskiptum, ekki sízt íReykjavík,þar sem þó mætti
búast við mestu fjöri og keppni í verzluninni. Tilraunir þær,
sem landsmenn hafa gjört á síðari árum með stofnun verzlun-
arQelaga, hafa flestar misheppnazt, og sumpart farið hraparlega.
Verzlunarfielögunum við Breiðafjörð og við Húnaflóa, er menn
fyrir nokkrum árum settu svo mikið traust til, hafa viljað þau
óhöpp til, sem riðið hafa þeim að fullu. Ivaupmaður sá í Berg-
en, er hafði umboð þeirra, varð gjaldþrota af viðskiptunum við
fjelög þessi, og var það kennt skipströndum og öðrum óhöpp-
um, sem fjelögin urðu fyrir. J>ar með var þeim lokið. Verzl-
unarsamtök þau, er 8t.randarmenn (Vatnleysustrandarhreppur)
höfðu, sjer í lagi í því að panta vörur beinlínis frá útlöndum,
og sem höfðu orðið þeim að góðu gagni, dóu nú út eptir fá ár,
án þess að brýnar orsakir sýndust vera til þess. Hlutaveltu-
fjelagið í Reykjavík stendur enn, og er talið heldur á framfara-
vegi, en þó er verzlun þess dauf og afllítil. Gránufjelag-