Fréttir frá Íslandi - 01.01.1878, Page 32
32
MENNTIR.
ársins 1877—78: 93. Af þeim voru 5 sagðir úr skóla á skóla-
árinu, en 10 útskrifuðust í lok júnímánaðar. Yoru þá 78 eptir.
16 nýsveinar bættust við um sumarið og haustið, svo að læri-
sveinar skóians voru í nóvember 94. |>eir, sem útskrifuðust,
voru: Finnur Jónsson, Páll Briem og Kjartan Einarsson, allir
með fyrstu einkunn, og Geir Zoega, Halldór forsteinsson, Árni
þ>orsteinsson, Bjarni Jensson, Jóhannes Olafsson, Asgeir Blöndal
og Eiríkur Gíslason, allir með annari einkunn. Kennslan og
allt skipulag skólans fór fram samkvæmt hinni nýju skólareglu-
gjörð, og þótti betur gefast í ýmsu, en margir ætluðu áður. Á
prestaskólanum voru 9 stúdentar skólaárið 1877—78. Af
þeim útskrifuðust í ágústmánuði 5, en 5 bættust aptur við
um haustið, svo að stúdentar urðu þar jafnmargir veturinn
eptir. J>eir sem útskrifuðust, voru: Jóhann Lúter Sveinbjarnar-
son með fyrstu einkunn, og Grímur Jónsson, Ólafur Ólafsson,
jporsteinn Benidiktsson og forleifur Jónsson með annari ein-
kunn. A læknaskólanum voru 6 stúdentar báða veturna.
2 tóku embættispróf í júnímánuði: Árni Jónsson og Helgi Guð-
mundsson, báðir með fyrstu einkunn. Próf í forspjallsvís-
indum við prestaskólann tóku prestaskólastúdentarnir Einar
Jónsson, Jóhann J>orsteinsson, Morten Hansen og |>orsteinn
Halldórsson, allir með fyrstu einkunn, og læknaskólastúdentarnir
J>órður Thoroddsen og Jón Johnsen, annar með fyrstu, en hinn
með annari einkunu. Sams konar próf við háskólann í Kaup-
mannahöfn tóku þessir íslenzkir stúdentar: Björn Bjarnarson,
Ólafur Halldórsson, Halldór Daníelsson og Jóhn Finsen með
fyrstu einkunn, J>órhallur Bjarnarson og Sigurður Guðmundsen,
með annari, og Jón pórarinsson með þriðju einkunn.
Kvennaskólarnir taka árlega nokkrum framförum.
Handa kvennaskólanuin í Reykjavík var nú reist stórt og vand-
að skólahús tvíloptað, svo að nú bagaði eigi rúmleysi sem áð-
ur, enda fjölguðu stúlkurnar, sem í hann gengu, til helminga.
1 nóvember voru þær 22 að tölu, og var þeim skipt í 2 bekki;
en að öðru leyti var kennslunni hagað líkt og áður. Komið
hefur til orða, að sameina kvennaskóla Norðlinga, hinn skag-
firzka og hinn eyfirzka, og reisa þeim eitt hús í sameiningu.
Að því leyti sem kvennaskólarnir eru styrktir úr landssjóði,