Fréttir frá Íslandi - 01.01.1878, Side 33
MENNTIR.
33
standa þeir undir umsjón stiptsyfirvaldanna. Sama regla hefur
vcrið sett um b a r n a s k ó 1 a þá, er njóta styrks af landssjóði.
|>eir eru ílestir á Suðurlandi, og hefur þeirra áður verið getið í
frjettum þessum. J>eir virðast allir vera á góðum fratnfaravegi,
en að öðru leyti er ekkert sjerlegt af þeim að segja. í Flens-
borg við Hafnarfjörð var nó stofnaður alþýðuskóli af gjöf
þcirri, er |>órarinn prófastur Böðvarsson í Görðum og kona
lians, J>órunn Jónsdóttir hafa gefið til slíkrar stofnunar, en það
var jörðin Hvaleyri og skólahús í Flensborg með öllu tilheyr-
andi, hvorttveggja metið 6900 kr. virði. Skóli þessi á að vera
barnaskóli fyrir Garðaprestakall á Álptanesi, en jafnframt að
því leyti, sem því verður við komið, almennur monntunarskóli.
Hann stendur undir umsjón stiptsyfirvaldanna, cr setja honum
reglugjörð. í Keykjavík og á Seltjarnarnesi voru haldnir um
tíma sunnudagaskólar, til þess að gefa þeim, er lítinn eða
engan tíma hafa á virkum dögum, kost á nokkurri menntun,
fyrir mjög litla borgun. Sömuleiðis tóku nokkrar heldri konur
og stúlkur í Keykjavík sig saman um, að veita fátækum stúlku-
börnum ókeypis kennslu í saumi og prjóni þrjár stundir á
dag í þrjá mánuði.
Sjónarleikir voru leiknir í Reykjavík, í Stykkishólmi
og á Akureyri. Eigi voru aðrir íslenzkir af leikjum þessum en
Útilegumennirnir (eða Skuggasveinn) eptir Mattías Jocli-
umsson, er leiknir voru bæði í Stykkishólmi og á Akureyri.
Hinir leikirnir voru útlendir, og leiknir sumpart á dönsku, en
sumpart í íslenzkum þýðingum. Alstaðar þótti takast vcl að
leika, og vera því góð skemmtun; en auk þess að skemmta, er
það kunnugt, að slíkir leikir jafnaðarlega hafa menntandi áhrif
á menn, og styðja á ýmsan hátt að góðri reglu.
Bindindisfjelðg virðast lieldur vera að fjölga og efl-
ast. í skýrslu um fjelög þessi í blaðinu Skuld í júlímánuði er
ætlað á, að bindindisíjelög á landinu muni þá hafa verið 11
talsins ; er þar líklega nærri farið, en þó er eigi ólíklegt, að
þau sjeu fremur fleiri en færri. Af bindindisfjelögum þessum
virðist mest kveða að fjelögunum í Norðfirði og á Vestmanna-
eyjum.
Að síðustu má geta þess hjer, að biskupinn kvaddi 25.
Fkjettir frá íslandi. 3