Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1895, Page 29
29
við Ölfusið, hvað sem bærinn hans hjet, og legg jeg ekki áherzlu
á þessa getgátu, þójeg kasti henni fram.
Að landskostum hefir Hraun ekki geflð Hjalla eptir til
forna: Engjar ágætar, likar Hjallaengjum; beitiland víðlent og
án alls efa mestallt skógi vaxið, en uppblásturinn, sem nú er
orðinn svo mikill, befir þá ekki verið kominn. Þá hefir Hraun
verið meðal beztu bújarða, og mun lengi hafa haldist í miklu á-
liti: Björn að Skarðsá segir, að Ljenharður fógeti hafi verið
seztur að Hrauni í Ölfusi þá er Torfi í Klofa drap hann. Raun-
ar segja aðrir, að það hafi verið í Arnarbæli. En þó það kunni
að vera sannara, þá sýnir samt missögnin það, að Hraun hefir
verið álitið svo mikið stórbýli, að fógetanum hafi þótt slægur í
að leggja það undir sig og setjast þar að.
Nú hefi jeg þá stuttlega sett tram ástæður mfnar, og sýnt
við hvað þær styðjast. Mun því naumast verða neitað, að meiri
likur sje til þess, að sd «bær Þórodds goða», sem hœtt var við að
jarðeldurinn mundi hlaupa rí, hafi verið að Hrauni heldur en að
Hjalla.
Br. J.