Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1898, Side 18
18
29. Oddi hinn litli stóð í oddanum milli Varmadals-
lækjar og Rangár (ytri), þó eigi fremst í honum, lieldur dálitlum
spöl upp með læknum. Þar sést grjótrúst eigi all lítil i brúninni
upp frá læknum. Þar hafa fundist brot úr kvarnarsteini. Oddi
hinn litli var landnámsjörð, og bjó þar Eilífur, bróðir Bjarnar í
Svínhaga og tengdafaðir Þorgeirs, er bygði Odda (hinn meira, o:
Oddastað). Oddi hinn litli hefir eyðst af sandfoki; og hefir það
verið fyrr enn sögur fari af.
30. Strönd hin neðri var nál. mitt á milli Vestri-Kirkju-
bæjar og Odda. Hún eyddist af sandfoki 1882. Þó er þar enn
graslendi nokkuð.
31. Mélákot hét smábýli, sem stóð nál. mitt á milli Neðri-
Strandar og Kirkjubæjar. Það hefir f'rá ómunatíð verið i eyði.
32. Strönd hin efri var stuttri bæjarleið i suðlægt suð-
vestur frá Kirkjubæ (Vestri) og stóð fyrir austan Síkið. Þar eru
nú tnelar og sér þvi iitið til rústanna.
33. Stóra-Hof stóð áður góðum spöl ofar enn nú. Það
var fært undan sandfoki ofan að ánni. Tvær bjáleigur lágu
þar til.
34. Hofshjdleiga stóð litlu ofar en bærinn stendur nú.
35. Draflaleysa stóð lengra burt, vestur á sandinum, og
hefir blásið af.
36. Brekkur stóðu undir heiðarbrún skammt austur frá
Gunnarsholti, par sem hrauubrúnin er farin að beygjast austur
með. Þessi bær lagðist í eyði af sandfoki 1882; en nú er verið
að byggja hann aftur austur við lækinn.
37. Skrafsagerði hét hjáleiga frá Brekkum og stóð austur
við lækinn nálægt því, sem Brekkur eru nú settar. Eigi vita
menn hvenær þetta býli hefir lagst niður.
38. Spdmannsstabir voru hjáleiga frá Reyðarvatni, sem
menn vita heldur eigi nær lagst hafa í eyði. Þeir stóðu suðvest-
ur frá bænum fyrir sunnan lækinn. Þar er óbJásið og rústin
grasbali og mótar nokkuð fyrir tóftum, en þó ógreinilega.
39. Iieyðarvatn hið litla eða Miðreyðarvatn var bæjarleið
suðaustur frá Reyðarvatni. Þar er eigi blásið enn; en þó heíir
sandfok gengið að beitilandinu, þá er land Austasta-Reyðarvatns
var blásið. Litla Reyðarvatn var síðast bygt 1811.
40. Reyðarvatn hið austasta var spölkorn í austurhalt
suður frá Litla Reyðarvatni og hér um bil mitt á milli Reyðar-
vatns, sem nú er, og Keldna — þó nokkuð fyrir sunnan þá stefnu.
Það hefir staðið sunnan til við hraunbrúnina, sunnan í móbergs-
hól, sem heitir Kóngshóll. Land þessarar jarðar er örblásið, og