Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1898, Side 22
22
fyrir lönpu. Bæjarrústin er allmikil ofr mikið fiutt í hana af
hraungrjóti; en öll er hún úr lagi gengin. Þó sést, að íjósið hefir
verið vestast og að eins laust frá. Standa þar tvær beizluhell-
ur uppi. Skamt frá fjósdyrum hafði verið brunnur, kom hann í
Ijós við jarðskjálftann í fyrra (1896), því sandurinn, sem hafði
fvlt hann, þéttist saman og lækkaði, svo brunnurinn varð meir
en 1 al. djúpur. Hleðslan í honum var óhögguð. Nú er hann
orðinn fullur aftur. Austasti hluti rústarinnar er nú ekki annað
enn grjótbreiða. En þar hafði verið kirkja og kirkjugarður, og
hafa þar sést mannabein til skams tima. En fyrir stuttu höfðu
þau verið tínd sannn og hulin, því sáust þau nú ekki.— Trölla-
skógur hefir staðið mjög hátt og hefir þaðan veiið rnjög vítt og
fagurt útsýni meðan gróið var
51. Lit i-Tröllaskógur hefir staðið vestan í brún á hraun-
kvisl, er gengnr fram sunnanmegin öldunnar og breiðist svo
vestur á við. Hefir sá bær verið stuttri bæjarleið í suðvestur
frá öldunni. Þar heitir enn »Lit!i-Skógur«, sést þar ein rúst nokk-
uð stór, melgrasi vaxin, og nokkrar smærri í kring. En svo sem
stekkjarvegi sunnar, undir sömu brún, er önnur rúst eigi öllu
minhi og nokkrar smærri þar hjá. En hvort þar hefir verið ann-
ar bær, eða Litli Skógur hefir verið færður, áður enn hann eydd-
ist alvog, er ekki hægt að segja. — I útnorður frá Lilta-Skógi er
hraunspilda, sem heitir Herjólfxheiðr, en eigi sést þar neiti rúst
og engin eru umtnæli utn bæ þar. Ofanvið hana er slétt svæði,
sem heitir Skotavöllur; þar var gott engi í minni fólks, sem nú
er gamalt; en nú er þ.að sandslétta ein. — Hraunbrúnin, sem
Litli Skógur er undir. gengur þaðan til suðausturs, næstum að
Arbæ; ertt undir henni skjól góð í landnyrðingi, en miður í norð-
anátt. A einttm stað sér þar fornlegan grjótgarðsspotta, er liggur
frá austri til vesturs. Engar aðrar rústir sjást þar nærri. Hygg
ég þetta hafa verið skjólgarð, ætlaðan til skýlis fyrir norðan-
átt.
52. Hrappstaðir heita norðanundir Þríhyrningi á lág-
lendis krók við Fiská, sunnanundir hraunbeiðinni, sem liggur fram-
hjá Reyttifelli. Heitir sá krókur Hrappsstaðanes. I því er girð-
ing mikil og í girðingunni vestarlega er bæjarrúst, nál. 20 fðm.
löng og nál. 10 faðma breið (að meðtöldum liúsagarði). Bjó ég
til uppdrátt af henni. Nokkrum föðmum ofar er rúst af' fjósi og
heygarði: Er fjóstóftin rúmlega 8 faðtn. að lengd og heygarður-
inn 8 faðm. að lengd og breidd, eu honum er skift I tvent með
þvergarði Löngum spöl vestar i girðingunni er önnur rúst, sem
mér sýnist líklegast að verið hafi kot; þó getur raunar verið, að