Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1898, Blaðsíða 27
27
hélzt hann framyfir síðustu aldamót. En þá fór þar og alt í sand,
og var bærinn þá settur þar sem hann er nú: á ása nefi, sem
gjörir bug norður í Árnesskvíslina, og er þar all-einkennilegt
bæjarstæði. Þar sem bærinn var næst áður, er nú að gróa upp
aftur; en uppi í ásnum, þar sem frumbærinn var, heldur sand-
fokið áfram. Upptök þess eru á sandeyrum við Þjórsá. — Ak-
brautarholt er nú vanalega kallað Akbraut í daglegu tali. Um
akbraut þá, sem bærinn hefir nafn af, eru engar sagnir og eng-
in merki.
4. Vakursstaðir hét bær milli Skammbeinsstaða og Stúf-
holts. Hann hefir snemma lagst í eyði; menn vita eigi af hverri
orsök það var. Þar eru nú fjárhús frá Skammbeinsstöðum.
5. fíorg hefir heitið hjáleiga frá Guttormshaga og staðið
undir svonefndu Borgarfelli. Þar er tóft mjög fornleg og girðing
í kring, fornleg og sterkleg, en eigi víðlend. Þetta býli mun á-
búandi heimajarðar hafa lagt undir sig af frjálsum vilja. En svo
er um ótal aðrar eyðihjáleigur víða um sveitir, sem langt yrði
upp að telja.
Samkvæmt framanritaðri skrá eru hin eyddu býli:
í Landsveit 32; i Rangárvallasveit 53; í Holtasveit 5.
Af þeim eru aftur bygð (með sömu eða öðrum nöfnum)
I Landsveit 13; í Rangárvallasveit 8; í Holtasveit 2.
Eyðst hafa þá að ötlu leyti:
I Landsveit 19; í Rangárvallasveit 45; i Holtasveit 3.