Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1902, Blaðsíða 40
4o
Skýrsla.
I. Ársfundur félagsins.
Ársfundur félagsins var haldinn 25. okt. 1902 eftir fundarboðun með
mánaðarfyrirvara í Isafold.
Formaður skýrði frá rannsóknum kapt. D. Bruuns á Austurlandi í
fyrra sumar og gat þess að félagsmenn mundu fá skýrslu um þær í fylgi-
riti með Árbókinni þetta ár, og að næsta ár mundi koma nákvæmari skýrsla
um fornleifar þær, er þar hefðu fundist, ásamt myndum af þeim. Þessu
næst skýrði hann frá að fyrir góðfúslega milligöngu Péturs alþingismanns
Jónssonar hefði félagið fengið leyfi til að rifa hlöðu þá í Ilörgsdal, er
skýrt er frá í Árbókinni 1901, og hefðu þeir kapt. D. Bruun og dr. B. M.
Olsen gjört rannsókn þar með góðum árangri; mundi skýrsla um hana
með myndum koma i næstu Arbók. Ennfremur skýrði hann frá, að Brynj-
ólfur [ónsson hefði í sumar farið rannsóknarferð um Reykjanesskaga og
mundi skýrsla um hana koma í næstu Árbók. Að síðustu gat hann þess
að Árbókin mundi í þetta sinn verða venju minni og myndalaus, eigi að
eins vegna hins mikla kostnaðar við rannsóknina á Hörgsdalsfundinum,
heldur og af því, að næsta ár mundi Árbókin verða óvanalega stór og
kostnaðarsöm.
Fram var lagður endurskoðaður reikningur félagsins fyrir 1901 og
höfðu engar athugasemdir verið við hann gjörðar.
Þvínæst var borin upp tillaga félagsstjórnarinnar um breyting á 10.
gr. félagslaganna svolátandi, að orðin: ýlögmætur fundur . . . . á fundi
og« falli burt, og var hún samþykt.
Að lokum hélt dr. B. M. Olsen fyrirlestur um Hörgsdalsfundinn.
II. Reikning'ui'
Hins íslenzka fornleifafélags 1901.
Tekjur: kr. a.
1. í sjóði frá f. á.................................................1167 32
2. Tillög og andvirði seldra Árbóka (fskj. 1).................... 163 50
3. Gjöf frá Miss Corn. Horsford.................................. 8 02
4. Styrkur frá Forngripasafninu til að spyrja uppi forngripi . 100 00
5. Styrkur úr landssjóði........................................... 300 00
6. Til jafnaðar við eftirstöðvar í árslok 1901, stafl. a . . 800 00
7. Vextir á árinu:
a, úr sparisjóði til 31/12 ’oi................... kr. 5 08
b, af bankavaxtabréfum til 2/7 ’oi . . . . . — 18 00 23 08
Samtals 2561 92