Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1903, Side 3
3
sundur. Smámolaðist miðja steinsins, þar sem holan var í hann; enn ut-
an með, þar sem hann var þikkari, urðu stikkin stærri. Fjekk Arni þar
úr 5 eða 6 hleðslusteina; hlóð hann þeim í hlöðuveggina. Smámolarnir
fóru í moldina, og munu þeir flestir eða allir hafa lent innaní veggjunum,
er moldinni var mokað upp í þá. . . . Hann (d: Arni) geimir hinn litla
bollastein. . . . Kljásteinarnir vóru tíndir, enn tinnuntolana afhenti hann
mjer handa safninu«.
Þegar Fornleifafjelagið hafði fengið skírslu um fundinn frá Rrynjólfl
Jónssini, fór það þess á leit við alþingi 1901, að það hækkaði lítið eitt
stirkinn til fjelagsins svo að það gætí látið rannsaka þessar fornmenjar,
og það gerði þingið. Nú í vor sem leið mæltist fjelagið til þess við
rektor Björn M. Olsen, að hann tæki að sjer að framkvæma þessa rann-
sókn, og kvaðst hann fús til þess, enn óskaði, að kapteinn Daniel Bruun
irði fenginn til að standa íirir rannsókninni ásamt sjer. Þessu lofaði Dan-
iel Brúun, og var svo um talað, að þessir tveir menn skildu hittast ná-
lægt Hörgsdal 14. ágúst þ. á. til að framkvæma rannsóknina.
Skírsla um rannsóknina
Eins og umtalað var, hittumst við á Gautlöndum 13. ágúst þ. á.
og hófum rannsóknina í Hörgsdal snemma næsta dag, 14. ágúst.
Við lásum skírslu Brynjólfs Jónssonar, sem prentuð er hjer að íram-
an, upp firir bóndanum Arna Flóventssini, og kvað hann hana rjetta í
öllum verulegum atriðum, enn óskaði þó að gera við hana fáeinar smá-
breitingar, sagði, að annaðhvort hliti hann sjálfur að hafa hagað orðum
sínum ógreinilega við Brynjólf, er hann skírði honum frá fundinum, eða
Brynjólfur hefði ekki skilið orð sín alveg rjett. Breitingar þær, er Arni
vildi gera, vóru þessar: Þeir 4 steinar, sem báru stóru helluna, stóðu
ekki á miðjurn grjótbálkinum, heldur í honurn miðjum, þannig að efra
ifirborð þeirra nam jafnhátt grjótbálkinum á báða vegu. Þar ofan á lá svo
hellan, og gnæfði hún því með allri þikt sinni upp ifir grjótbálkinn til
beggja hliða, enn nam ekki hærra. Tinnubrotin fundust ekki í hlóðun-
um undir hellunni, heldur rnilli steina i grjótbálkinum. Hann segir, að
málin á bollanum, sem var ofan í stóru helluna, sjeu sett af handa hófi
og ekki áreiðanleg, sem og er eðlilegt, því að, þegar hann skirði Brynjólfi
Jónssini frá fundinum, vóru 9 eða 10 ár liðin, og segist hann ekki þora
að fullirða, að sig minni rjett um stærð bollans. Að iokurn lætur hann
þess getið, að það sje að vísu alveg rjett, að hann hafi firir hvorugan
1*