Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Árgangur

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1903, Blaðsíða 21

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1903, Blaðsíða 21
21 um hærra en vegurinn og nær 20 feíum hærra en vatnið í ánni. Onnur beinagrindin lá austar og sneri nálega beint frá norðri til suðurs; á aðra hlið hennar fanst spjótsoddurinn, við hina öxin, nálega undan mjaðmarstað. Nálega 3 til 4 fet i suðvestur af þessari beinagrind fanst önnur og var höfuðið stærra en á hinni, að því er menn rak minni til. Þessi beinagrind sneri nálega í sömu átt sem hin. Hjá henni fanst hlutur sá úr bronsi, er áður var nefndur. Engar fundust þar menjar aðrar en þær, er til safnsins hafa komið. Engin merki sáust þess, að grjóti eða þess háttar hefði verið hlaðið að líkunum. Af þeim menjum, er í leiðunum fundust, má ráða, að eystri beina- grindin muni vera af manni, en vestari beinagrindin af konu, þar sem engin vopn fundust hjá henni, heldur hlutur, sem kona mundi helzt hafa átt. Að öðru leyti er það merkisatvik, að kvenhöfuðið hefir þá verið stærra en karlshöfuðið, svo sem sjá má af rannsókn Guðmundar læknis Björnssonar, er nú skal greina og gerð er eftir beiðni minni: Tvenn íslenzk fornaldar-bein. Sumarið 1901 fann Daniei Bruun höfuðsmaður fornaldardys í nánd við bæinn Brú á Jökuldal. I dysinm fundust mannsbein og hestbein, ýms- ir skrautgripir og fataleifar, en engin vopn. Höfuðsmaðurinn hélt, að bér mundi kona hafa verið lögð í haug — einhver göfug íslenzk hefðarkona frá heiðinui tíð. Sumarið 1900 fanst önnur heiðinna manna dys nálægt Kroppi í Eyjafirði; voru þar teknar upp leifar af tvennum mannabeinum og ýmsir munir af járni, meðal annars ein öxi, og var þess vegna talið víst, að bein- in væru karlmannsbein. Ekki höfðu þeir menn vit á fornum fundum, sem þetta tóku úr jörðu- í forngripasafninu í Reykjavík voru þessir fundir, Brúarfundurinn og Kroppsfundurinn, settir á sama borð, og sást þá fljótt, að beinin frá Brú voru snögt um stærri en Kroppsbeinin; fyrir þá sök efuðu menn að höf- uðsmaður Bruun hefði rétt að mæla, er hann taidi Brúarbeinin kven- mannsbein. Höfuðsmaðurinn hefir nú skorað á mig að gera mannfræðisrannsókn á bainunum; vildi hann vita, hvort unt mundi á þann hátt að leysa úr þessu efamáli. Þá skoðun sína, að Brúarbeinin væru kvenmannsbein, hafði hann fengið eingöngu vegna fornmenjanna, sem fundust, skrautgrip- anna og fataleifanna, og vegna þess, að engin vopn fylgdu með. Eg hefi orðið við þessari áskorun, en vil jafnframt láta þess getið, að eg er ekki mannfræðingur (Anthropolog), enda ætla eg ekki að gera neina tilraun til þess, að láta af hendi nákvæma vísindalýsingu á beinun-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.