Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1903, Side 27
27
Kúpt nisti eða sporöskjulagaðar nælur finnast um öll Norðurlönd
og erlendis, þar sem norrænir víkingar hafa verið á sveimi. Þau eru að
ofan krotuð hinum einkennilegu dýramyndum þeirra tíma, oft töluvert
upphleyptum, stundum eru festar á þau lausar dýramyndir.
Sum þessara nista eru tvöföld. Neðra hvolfið er slétt, en efra hvolf-
ið er gagnskorið milli krotsins. Skartgripir þessir eru uft gullroðnir eða
silfraðir, stundum rendir svertu. Þau eru alt að því 12 sm. að lengd og finnast
oft tvö og tvö saman, stundum ásamt nælum með öðru lagi. Innan í
neðra hvolfinu í öðrum enda þess gekk þolinmóður gegnum höfuð á
þorninum, en hinum megin var honum krækt undir krók. Þorninn hefir
venjulega verið úr járni, en er tíðast eyddur af ryði.
Þessa skartgripi hugði Dr. Stolpe1 hinn sænski vera eingöngu úr
leiðum kvenna, en hann stýrði uppgrefti Bjarkeyjar í Leginum milli 1870
og 1880, svo sem kunnugt er, en þar hyggja menn verið hafa stóran bæ
á víkingaöldinni. O. Rygh, háskólakennari í Kristjaníu, hugði að þau
gætu verið úr leiðum karla jafnt sem lcvenna, en Dr. phil Sojus Milller
hygst mega fullyrða, að í Danmörk finnist þessir skartgripir eingöngu í
leiðum kvenna, með því að vopn finnist aldrei ásamt þeim í leiðum, sem
vandlega hafa verið rannsökuð.
Auk þessara kúptu nista finnast önnur með ólíkri gerð, mjög krotuð,
venjulega með dýramyndum; sum eru jafnarma, önnur kringlótt, ferstrend
o. s. frv. Einkennileg eru hin þríálmuðu nisti, með þremur samkynja
álmum, kollóttum fyrir endana. Undir einni álmunni leikur þorninn á
þolinmóði, en hinum megin er krókur, undir eða við enda þriðju álmunn-
ar er fótur (kengur) til að stinga í þræði eða baudi; þessi áíma hefir snú-
ið upp á fatinu (breidd 5 —10 sm). Á þau eru krotaðar bandflækjur og
dýramyndir með norrænu sniði eða smágjört blaðflúr með rómönsku
sniði. Sams konar fót má einnig sjá á öðrurn nistum, svo sem hinum
kringlóttu. Þess skal enn getið, að til eru nælur með fuglsmynd, hring,
nælur með hausi o. s. frv.
Með skartgripunum má telja tölur úr gleri, bergkrystalli og því lík-
um efnum; eru þær annaðhvort einlitar, glærar eða tíglóttar (gular, rauð-
ar, hvítar, grænar, bláar, fjólubláar o. s. frv.). Töluvert margar hafa fund-
ist á íslandi, svo sem annars staðar á Norðurlöndum.
í Noregi hafa fundist langt um fleiri nisti en í Danmörk.
Á Islandi hafa eigi heldur fundist fá nisti. í söfnunurn í Reykjavík
og Kaupmannahöfn eru nálega 2 tugir, en að eins um fá þeirra hefir
vitnast, hvernig til hagaði, þar er þau fundust.
1) Sbr. Kaalund:
Hist.« 1882).
Islands Fortidslevninger (i »Aarb. f. nord. Oldk. og
4*