Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Árgangur

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1905, Síða 1

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1905, Síða 1
Rannsókn f x i Arnesþingi sumarið 1904 (að nokkru leyti áður undirbúin). Eftir Brynjúlf Jónsson. Þó margt sé áður ritað um ýmsa forna staði og fornar minjar í Arnessþingi, hefir þó enn margt verið eftir, sem athuga þurfti og rita um. Því kom stjórn Fornleifafélagsins ásamt um það við mig, að gjöra gangskör að því í sumar. í því efni hafa ýmsar eldri at- huganir mínar, sem lijá mér lágu, komið í góðar þarflr. Set ég alt slíkt hér fram í einni heild, og tek fyrst eystri hlutann (austan Hvítár) og þá hinn vestri, og byrja neðantil á báðum. Eg hefi oft orðið þess var, að jafnvel kunnugir menn hafa verið i vafa um, hvernig skilja eigi sumt, sem Laudnáma segir um land- námin á neðanverðu svæðinu milli Þjórsár og ölfusár. Kemur þetta af því, að mörg örnefni og sum bæjanöfn, sem þar eru talin, eru nú týnd eða breytt. Er og landslagið talsvert umbreytt frá þvi sem þá hefir verið, mest af ágangi sjávarins á landið, en sumstaðar af sandfoki. Það getur ekki verið neitt vafamál, að á þessu svæði, ■— eins og t. d. á Suðurnesjum og víðar, — hefix' lanclið sigið niður og lækk- að frá því sem fyr var. En þessu heflr miðað svo hægt, að menn hafa ekki orðið þess varir, eða merkt áhrif lækkunarinnar, fyr en stórflóð kom, og braut meira eða minna traman af jarðveginum við sjávarmálið. Þá kom það í ljós, að bei’gið, sem undir lá — og það er á þessu svæði alstaðar hi’aun, — var lœgra en svo, að par hefði nokkurntíma getað myndast jarðvegur, vegna sjávai’ins, ef það hefði ekki verið hœrra áður. Og svo hefir sjórinn smámsaman fært jarð- vegsbrúnina lengra uppeftir, og gerir það sumstaðar enn. Bei’gið er orðið nógu lágt til þess. Þó má enn nokkuð verjast með sjógörðum, eins og þegar er gjört á Eyrai’bakka og Stokkseyi'i. — Bei'gið, sem sjórinn liefix' bi'otið jarðveginn ofan af, verður þaðan af að fjöru- 1

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.