Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1905, Page 2

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1905, Page 2
•> hlöppunij sem jafnan eru í kafi um flóð. Ér nú brimgarðurinn þar, sem áður var ströndin, þar er jarðvegurinn tók þá við með túnum og bæjum. Það er lika vissa fyrir, að bæir stóðu áður þar, sem nú ganga oft flóð yfir. Og örnefni í fjörunni benda til, að þar hafi bæir verið. Verður slikt skiljanlegt af því sem nú hefir sagt verið. Sandur hefir hér einkum gengið á landið vestur frá Þjórsá og austur frá ölfusá. Jökulaurinn, sem þær bera fram, verður sum- part eftir i botninum þar, sem straumlitið er orðið, og mvndar þar grynningai'; sumpai't berst hann í sjóinn; en sjórinn rótar lionum upp að ströndunum, og ber liann þar sarnan i sandöldur, sem fara sívaxandi. Þannig er Loftstaðaalda milli Þjórsár og Baugstaðasíkis mynduð af jökulaur úr Þjórsá. En Hafnarskeiðs (»Vikarskeiðs«) sandaldan er mynduð af jökulaur úr Ölíusá. Þá er sandöldurnar eru orðnar þurrar ofan, fýkur sandur úr þeim, bæði uppá landið og upp í árnar sjálfar. Við það aukast grynningarnar. En það bæta árnar sér upp með því, að vikka út farvegi sina og brjóta löndin til hliðanna. Þannig hefir Ölfusá feykimikíð breikkað fyrir ofan ósinn og færst austur á við, svo að jafnvel ós hennar, Alfsós eða Alfós hínn forni, er nú ekki lengur á sínum upprunalega stað, held- ur er útfall árinnar nú miklu austar. Þjórsárós hefir færst til í manna minnum, og allur er farvegur hennar útvikkaður oían frá Egilsstöðum. Af þessum orsökum er það eigi að undra, þó lands- lag hafi breyzt og örnefni týnst á þeirn stöðum, sem um er að ræða. Bæði 1902 og 190.-Í hefi ég gert sérstakar tilraunir til áð rann- saka þetta efni og bera saman við Landnámu, auk þess sem eg hefi áður liaft það í huga, er eg hefi átt leið um þetta svæði. Og eg hefi notað hvert tækifæri, sem kostur var á, til þess að fræðast af þeim mönnum, er lengst mundu fram og gjörst höfðu tekið eftir breytingum, er orðið höfðu í minni þeirra. Er slikt gott til saman burðar, enda þótt hinar helztu breytingar séu eldri en svo, að nokk- ur, sem ég náði í, hafi munað þær. Tek eg nú fyrst fyrir neðstu landnámin og vil leitast við að skýra frásagnir Landnámu um þau, bera þær saman við örnefni og landslag á þeim stöðum, svo og skýra frá lands-spjöllum, er þar hafa orðið og þar af leiðandi breytingum á landslagi og örnefnum, að því er eg fæ næst komist. Landnám Lofts gamla. Svo segir í Landnámu (V. 8.): »Loptr, son Orms Fróðasonar, kom af Q-aulum ungr at aldri ok nam fur utan Þjórsá milli Rauðár

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.