Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Ukioqatigiit

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1905, Qupperneq 3

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1905, Qupperneq 3
*> . > ok Þjórsár ok upp til Skúfslækjar ok Breiðumýri alla eua eystri upp til Súluholts ok bjó í Gaulverjabæ». örnefni þa.u, sem hér eru nefnd, haldast enn, nema «Breiðamýri hin eystri« og «Rauðá». En svo vill vel til, að um hvorugt getur verið að villast. »Breiðamýri hin eystri« er hið mikla mýrasvæði austur frá Gaulvcrjabæ, sem nú heitir, suðaustan til Miklavatnsmýri. Hefir hún náð að Skúfslæk meðan hann rann svo miklu sunnar en nú rennur hann, sem síðar mun getið. «Rauðá» hefir þá heitið neðsti hluti Hróarsholtslækjar hér um bil ofan frá Meðalholtum til sjávar. Kú heitir útfall hans Baugstaðasíki. Það skal þegar tekið fram, að þessi lækur hefir 3 nöfn í Landnámu: Efst heitir hann Hraunslækur; því hann kemur undan Merkurhrauni og er kendur við það ofan á móts við Neista- staði eða jafnvel Hraungerði. Þá heitir hann Hróarslœkur fyrir Hróarsholtslandi og hér um bil ofan til Meðalholta. En þaðan heitir hann Rauðá til sjávar. A og það nafn vel við, því þar er hann orðinn mikill sem á, og hefir rauðleitan lit af mýraleiri. Hefir því landnám Lofts, — að meðtöldu því landi, sem hann gaf Þorviði á Vörsabæ, — náð yfir alt það svæði, sem Gaulverjabæjarhreppur nær nú yfir. Þar eru aðeins 3 bæir með sjónurn: Loftsstaðir, Ragnheið- arstaðir og Fljótshólar. Þeir hafa allir spilzf af sandi og verið fluttir. A Loftsstöðum er sagt að Loftur hafi haft annað bú, og að bærinn hafi þá, og langt fram á aldir, staðið á háurn hól, sem þar er fram við sandölduna. Er mjög fágurt og vítt útsýni af hólnurn. Þá er bærinn var þar, voru tvær hjáleigur þar, sem Loftstaða-bæirnir eru nú, — því jörðinni er skift í tvent, •— hét Strympa þar sem nú eru hús á Eystri-Loftsstaða-hlaði vestantil, en Grilla þar, sem enn sér rústina í Vestri-Loftsstaða-túni. Starengisdæl war þá milli hóls- ins og hjáleigutúnanna; þar er nú sandvalllendi nýgróið. Hóllinn er sagt að hafi mjög blásið upp um tíma, en nú er þar grætt tún að nýju. Lögðu Loftsstaðamenn mikla stund á að græða upp sandinn með fiskiúrgangi, meðan þar var góð veiðistöð. En það varð líka til hjálpar, að Loftsstaðaá tók sér farveg vestur með hólnum, þar sem hún rennur enn, og varnar hún sandfokinu það sem hún nær. Eigi er unt að ákveða bæjarrúst í hólnum, því þar eru svo mörg hús og tóftir frá vorum tíma. Ragnheiðarstaðir hafa tvisvar verið færðir og sjást rústirnar. Eru þær nokkuð liáar, því grjótdreifar geyma undir sér leifar af jarðvegi. Nýrri rústin er nær graslendinu, en hin eldri lengra fram í öldunni. Þar hefir á sínum tíma nokkuð af grjótinu verið borið saman í vörðu, sem þó er hrunin, og hefir rústin fengið við það strýtumynd. Er hún þvi kölluð Strýtu-Ragnheiðarstaðir. Þar sem 1*
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.