Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1905, Blaðsíða 18
18
dálítií græn rúst á árbakkanum nokkuð upp með ánni. Þar hjá,
litlu fjær ánni, var önnur rúst með vörðu á. Var mér sagt, að það
væri fjóss- og lieygarðstóítin. Rúmum 20 árum síðar var bæjarrústin
horfin, fallin í ána, en varðan á fjósrústinni stóð tæpast á bakkanum.
Síðan eru liðin önnur 20 ár, og nú er fjósrústin lika horfin. Mér
sýnist nú líklegt, að meðan áin lá öll vesturfrá og hafði miklu mjórri
farveg, þá hafi bærinn Nes einnig staðið miklu utar (vestar), en
verið fœrður undan ánni, ef til vill oftar en einu sinni, áður en
sögur fara af. Hafi áin, — sem sennilegt er, — brotið viðlíka mikið
hver 40 árin, sem þessi síðustu í mínu mínni, þá gæti hún verið
búin að hrekja þenna bæ nokkrum sínnum undan sér. Og nóg er
svæðið; breikkun farvegarins austur á við nær nú yfir afarmikið
flæmi. Rennur áin þar i kvíslum og eyrar í milli.
Aður en ég skilst við landnám Hásteins, vil ég geta þeirra
munnmæla, að fyrrum hafi margar eyjar og hólmar verið á Þorláks-
hafnarvík. En með því efni þeirra hafi verið eintómur árburður,
hafi sjórinn smámsaman brotjð þær burt og borið sandinn upp að
landinu. Eigi man eg þó heimild fyrir þessu.
Einnig vil eg geta þess, að þar sem orðið «kelda» kemur fyrir
hér að framan, þá er það ekki liaft i sinni fornu merkingu, sem er
kaldavennsluppspretta (þeirri merkingu lieldur það enn í nokkurum
bæjanöfnum), heldur er það haft í sinni nútíðarmerkingu, sem er
mýravatmrás, (vanalega grunn og straumlítil og með meira eða
minna grasi í botninum, en þó oftast blaut og ill yfirferðar).
Kaltlaðarnes.
Svo segir Landnáma (V. 9.): »Þórir, son Asa hersis Ingjalds-
sonar, Hróaldssonar, fór til Islands ok nam Kaldnesingalirepp allan
upp frá Fyllarlæk ok bjó at Selfossi«. Nafnið »Kaldnesingahreppur«
er leitt af bæjarnafninu Kaldaðames. En það bæjarnafn er eigi
auðskilið, og hefir verið reynt að skýra það á fieiri en einn veg.
Svo segja munnmæli, að í fornöld liafi áin verið svo mjó á svæðinu
milli Kaldaðarnes og Arnarbælis, að þar hafi mátt kallast á yfir um
hana, og af því hafi bærinn íengið nafnið, Kállanarnes, en svo hafi
an- breyzt í að-, — að sínu leyti eins og Finnr er stundum breytt í
Fiðr, — og þannig orðið Kallaðarnes; þá hafi og Kall- breyzt í
Kald-, að sínu leyti eins og ö/hmgis í ö/dungis, — og þá var það
orðið Káldaðarnes. Er þessi skýringin víst elzt og almennust. Og
það er nú ekki ólíklegt, að fyrrum hafi áin verið miklu mjórri, —
og að því skapi dýpri, —. en hún er nú, á þessu svæði og lengra