Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Árgangur

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1905, Síða 28

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1905, Síða 28
landið bygðist. Og saraa er að segja um Laxá. Hún hefir einhvem tíma á liðnum öldum runnið suðvestur yíir Skeiðin út í Hvítá. Það Það sýnir forn farvegur. En hann hefir verið þornaður og uppgró- inn fyrir æfalöngu þá er Olafur kom. Á landnámsöldinni hefir Þjórsd eigi borið það nafn á þvi svæði, sem með fram Skeiðunum liggur. J’eir, sem þar bygðu austan megin hennar, hafa kallað hana Kaldá. Það sýnir bæjarnafnið Kalddrholt. Sá bær stendur þar á austurbakka hennar. Og nafnið Kaldd er svo mikið réttnefni um einhverja hina köldustu á landsins, að undra má, að það náði ekki yfirhönd. En skiljanlegt verður það með því móti, að Skeiðamenn, sem á svo löngu svæði áttu land að ánni, hafi gert sér far um að halda fram Þ/or.w-nafninu. Og það gat verið fylgismál frá þeirra hlið, hafi samband verið milli ættanna Olafs tvennumbúna og Þór- arins Þorkelssonar. Og Trausta-nsiimb gefur bendingu um, að svo hafi verið: Helgi trausti var sonur Olafs; og bærinn Trausta-holt í landnámi Þórarins hefir víst verið kendur við nafn eða viðurnefni manns. En það nafn er svo sjaldgæft, að manni hlýtur að detta í hug, að hér sé að ræða um menn af sömu ætt. Það er í þessu, eins og svo mörgu öðru, að þar sem enga vissu er að fá, verður maður að láta sér nægja það, að benda d likur. Suðvesturtakmarkið á landnámi Olafs er ekki hægt að ákveða nákvæmlega. Landamerkin milli þeirra Olafs og Özurar í Kampa- holti hafa verið einhversstaðar á Merkurhrauni og svo beint austur í Þjórsá. En Merkurhraun er all-mikið svæði. Austan við hraunið, milli þess og Kílhrauns, er mýrlend grasslétta, sem heitir Áshildarmýri. Hún á að vera kend við Áshildi, konu Olafs. Frá þeirri mýri gengur laut mikil alla leið vestur úr hrauninu. Hún heitir Merkurlaut. Sunnan við mýrina og vestan við lautina skift- ast vegir þá er frá Olafsvöllum er komið; liggur annar ofan með lautinni niður i Flóa, en hinn til Hraunbæjanna niður við Þjórsá. Þetta eru að líkindum gatnamótin, sem Landn. nefnir. Litlu fyrir neðan gatnamótin er stór hraunhóll, er heitir Axarhóll. I honum er sagt að Þorgrímur orrabein hafi verið heygður, hafi exi hans fundist þar síðar, og sé hóllinn kendur við hana. Nú sjást engin merki þess, að þar hafi haugur verið eða dys. En sögnin um axar- fundinn bendir á, að dysin hafi verið rofin og leitað í henni. Hafa þá þar, eins og víöar, öll verksummerki verið eyðilögð. Ofantil við mýrina er annar hraunhóll, miklu minni. Hann heitir Áshild- arhóll, og sagt, að Áshildur liggi þar. Ekki sjást heldur nein merki til þess. En skamt er þaðan að Axarhól og sést hann gjörla. Get- ur þetta ef til vill bent á, að Áshildur hafl harmað Þorgrím dauðan.

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.