Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1905, Blaðsíða 35
35
sér að þetta væri barnabygging. En. grjótið í henni er mikils til of
stórt til þess, að það geti verið. Á svo háum stað, sem hér er, var
hentugt að liafa hja.ll til að þurka í eitthvað það, sem maðkafiuga
mátti ekki komast að. Hór er of svalt fyrir hana. Og með því að
í Hrepphólum heflr frá ómunatið og fram á seinni hluta 19. aldar
verið góð laxveiði í Stóru-Laxá, þá er það varla vafamál, að á
Hjallrísi hefir lax verið þurkaður t.il geymslu áður enn menn kunnu
að salta hann, eða þá að saltið skoi'ti.
Naddaðarsynir.
Svo segir Landnáma (V. II.) »Bröndólfr ok Már, Naddaðar
synir ok Jórunnar, dóttur Olvis barnakarls, kómu til íslands bygðar
snemma; þeir námu Hrunamannahrepp svá vítt sem vötn deila.
Bröndólfr bjó at Berghyl.... Már bjó at Másstöðum«.... Viðvíkj-
andi bústöðum þessara bræðra vil eg taka fram þnð, er nú skal segja:
Bærinn Berghylur stendur vestan undir háu felli, sem gengur langt
niður. Gagnvart því, langri bæjarleið vestar, er hár ásahryggur, er
hverfur saman við fjallið um Gildarhaga. Verður dalur milli ás-
anna og fjallsins. Móts við bæinn Berghyl, útnorður þaðan, er bær
sá, er Reykjadalur heitir. Hann stendur i sérstökum ási, og er þar
engin dalmyndun önnur, en hinn nýnefndi dalur, sem báðir bæirnir
eru i. Inn frá Reykjadal, hjá bænum Laugum, eru hverir, og hlýt-
ur bærinn Reykjadalur að hafá nafn af þeim. Nafnið Reykjadalur
nær þannig yfir allan hinn áðurnefnda dal. En eigi mundi einstak-
ur bær í þeim dal hafa verið nefndur nafni dalsins, ef aðrir bæir
hefðu verið þar áður. Af þessu hefi eg dregið þá ályktun, að Brönd-
ólfur muni fyrst hafa sett bæ sinn i Reykjadal og gefið bænum það
nafn, en síðar flutt sig að Berghyl og búið þar síðan til elli. Hann
hefir átt tvo sonu að minsta kosti. Ritari Landnámu hefir ætlað að
telja fleiri enn einn, þó hann livrfi frá því. En sá þeirra, sem ætt
er talin frá, liefir líklega verið á Berghyl eftir föður sinn og sá bær-
inn því orðið kunnari, sem landnámsjörð. Ætla má, að annar son
hans hafi búið á Reykjadal. Víst er um það, að bæjarnafnið féll
ekki niður þó Bröndólfur fiytti þaðan. Er því líklegt, að bygð þar
hafi aldrei lagzt niður.
Bæjarnafnið Másstaðir er ekki til og hefir þvi týnst mjög snemma.
Og með því að Más-nafn er fremur sjaldgæft, hefir þess verið getið
til, að þetta sé sami Már sem sá, er numið hefir Mástungu í Gnúp-
verjahreppi. En það getur því að eins verið, að hann hafi fiutt sig
alfari úr Hrunamannahreppi, — selt alt landnám sitt — og síðan
5*