Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1905, Page 36

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1905, Page 36
nuraið Mástungu. Hann seldi Þorbirni jarlakappa »alt fyrir neðan Selslæk, á railli ok Laxár«. Selslækur er nú án efa sama sem Litla- Laxá. En hún rennur eftir endilöngum hreppnum og hefir víst skilið landnám bræðranna, svo að af henni verður ekkert ráðið um það, hve langt það land, sem Þorbjörn keypti, náði upp eftir. Og þó Már liafi fiutt sig að Mástungu, er sama óvissan um Másstaði fyrir því. En hafi Þorbjörn eigi eignast nema nokkuð af landnámi Más, neðan tíl, — sem helzt er að ráða af orðalagi Landnámu, — þá verður að hugsa sér Másstaði ofarlega í hreppnum, ef til vill þar, sem nú heitir Hrunakrókur. Þar er fagur dalur, lengst til fjalla, og þar eru mikil fornmanna virki. En þar er mjög mikið vetrar- ríki. Má vera að fjármissir hafi neytt Má til að selja land og ef til vill til að flytja burtu. — Auðvitað legg eg ekki áherzlu á þetta, þó eg slái þvi fram. Þá er nú komið að vesturhlutanum: vestan Hvitár og ölfusár. Þirigliolt í Ölfnsi. Svo segir Landnáma (V. 13.) »Ormr (hinn gamli) nam land fyrir austan Varmá til Þverár ok um Ingólfsfell alt ok bjóíHvammi; hans son var Darri faðir Arnar«.... Þverá, sem hér er nefnd hlýt- ur að vera Tunguá í Grafningi. Til þess getur um enga aðra á verið að ræða. Arnar Darrasonar er getið á þann hátt, að auðsjáan- lega er gert ráð fyrir, að lesandinn kannist við hann. Hefir hann vist verið höfðingi og án efa bygt fyrstur í Arnarbæli; mun það liöfuðból við hann kent. Hann hefir átt mannaforráð um ölfus fyrir austan Varmá. Norður frá túni í Arnarbæli er lágt holt, er Þing- holt heitir. Eigi vita menn tildrög til þessa örnefnis, og mun það vera fornt. Ef til vill er það sveitarþingstaður Ai’nar. Holtið er aflangt frá norðri til suðurs, og er það uppblásið eftir endilangri miðjunni, en óblásið utan með. Þar eru á því margar tóftir, en fiestar eru þær frá seinni tímum: það er fjárhústóft ein nýleg og margar stekkjartóftir, misgamlar að sjá. Að eins ein tóft er þar veru- lega forn, og er hún svo niður sokkin og óglögg, að ekki er hægt að mæla hana. En allstór er hún að sjá og eigi ólíkleg til að vera forn búðartóft, þó það verði nú ckki fullyrt, þar eð cigi sjást fleiri á hennar reki. Þær geta nú verið eyðilagðar, hver veit hve marg- ar, bæði verið blásnar burtu, og líka verið teknar upp i hinar nýrri tóftir. En þótt það geti verið, og þótt, meira að segja, engin ólík- jndi séu á því, þá vantar sarat vissuna um það. Að eins hafn-

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.