Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1905, Qupperneq 47
it
ingu, sem er gíld dagslátta að stærð og við vesturhorníð vottar fyr-
ir óglöggum rústum, sem eg treysti mér þó ekki til að mæla og
enda ekki til að lýsa svo gagn verði að. Skamt vestur þaðan er
hraunhola, sem oft kvað standa vatn í; það er brunnurinn. Hið
merkilegasta við þessa rúst er nafnið: »Rótólfsstaðir«, sem auðsjáan-
lega á að vera Ródölfsstaðir (o: Róðólfsstaðir). Þar eð menn vita
eigi af manni með því nafni liér á landi í fornöld, öðrum en Róð-
ólfi biskupi, þá kemur manni ósjálfrátt í hug, að hann muni í fyrstu
hafa sezt að á þessum stað, álitið hagkvæmt fyrir trúboðið að búa
nálægt alþingi. En svo hafi hann brátt flutt sig að Lundi og síðast
að Bæ, eftir því sem reynslan sýndi honum hvað bezt kæmi í liald.
Auðvitað getur þetta fornbýli verið kent við annan Róðólf, sem
menn ha-fa ekkert af að segja. En hvað sem um það er, þá hygg
eg að t í Rófólfsstaðir bendi á það, að snemma á öldum hafi manns-
nafnið verið borið fram Ródólfr, en ekki Róðólfr, sem síðar varð, og
að d í þessu bæjarnafni hafi snemma orðið að t og það síðan hald-
ist. Annars er líklegt að þar hefði komið ð fyrir d eins og í manns-
nafninu. Og sú breyting (ð fyrir d) virðist hafa verið komin á áð-
ur rit hófust hér á landi.
Prestastigur.
Forn vegur liggur yfir ofanvert Þingvallahraun. Hann liggur
frá Reyðarmúla (nú Reyðarbarmi) til norð-vesturs yfir Hrafnabjarga-
liáls, ofan af honum skamt vestur frá Hrafnabjörgum, norður lijá
bæjarrústinni, sem þar er og svo þvert yfir hraunið til Armanns-
fells og kemur á þjóðveginn litlu fyrir neðan Hofmannafiöt. Þessi
vegur heitir Prestastígur. Er sagt að prestar af Vesturlandi hafi oft
íarið hann 'í Skálholtsferðum sínum. Og svo er að sjá, sem Sturla
Sighvatsson hafi farið hann, er hann fór Apavatnsför. Það er miklu
beinna en að fara um Þingvelli. En mjög er þessi leið ógreið víð-
asthvar, svo mjó að eigi getur farið nema 1 hestur í senn og að
því skapi er hún grýtt. En hvar sem liún liggur um greiðfæra
bletti, verður hún að mörgum og djúpum götum. Þar af sést, að
allmikil umferð hefir verið þar fyrrum. NúerPrestastígur ekki notaður.
Skálholtsmannavegur.
Eins og kunnugt er, liggur alfaravegur frá Skáliiolti út yfir
Spóastaðaferjustað; svo liggur hann fyrir norðan Mosfellsfjall, út yf-
ir Grimsnesið milli Apavatns og Þóroddsstaða, svo út ýfir austan-