Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1905, Page 50

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1905, Page 50
50 báðir armarnir niður að mýrarjaðrinum og er þar þvergarður milli þeirra. Verður við það þrihyrnd girðing. Þó er eísta horn hennar skorið frá með stuttum þvergarði. Þar við myndast þrihyrndur smá- reitur, sem án efa hefir verið sáðreitur. Svo segja munnmæli, að bygð hafi verið í Holtum til forna, og að þar hafi verið liöfuðból og kirkjustaður, en að Holtakot hafi verið hjáleiga þaðan. Nafnið Holta&oí bendir líka til að svo haíi verið. Er að sjá sem þá hafi þar verið fleira en eitt býli, því enn er bærinn ávalt nefndur »í HoltakotMw«. Er sagt að bærinn og kirkjan liafi staðið þar, sem fjárhúsin hafa síðan verið sett. Þaðan er fjóss- og hlöðutóftin, sem fyr var getið, eigi langt frá, og hefir hún víst tilheyrt heimabænum. Skamt vestur frá tóftunum er kaldavermslisdý með ágætu vatni og hefir það verið vatnsból bæjarins. Það er kallað »Holtabrunnurinn«. Hvergi er, það eg veit, getið um þenna bæ í ritum, og hefir liann án efa lagst snemma í eyði. Þess skal getið, þó það komi ekki fornleifum við, að bak við fjárhúsin, og mjög svo nærri þeim, er gjá, sem raunar er orðin að uppgróinni graslaut, en rifnaði þó nokkuð aftur í landsskjálftunum 1896; þó er það nú að gróa á ný. Stefna gjáarinnar er frá norð- austri til suð-vesturs, eða því nær eftir línu milli Gieysis og Reyk- holtshvers. Eigi er þetta hraungjá, því hraun er þar hvergi nálægt. í Helludal. Neðarlega í túninu i Helludal í Biskupstungum er fornleg tóft, tvískift af miðgafli, sem dyr eru á, og útidyr á enda framtóftarinn- ar. Er tóftin kölluð hoftóft. En það ætla eg að eigi sé rétt, og virðist mér hún fremur líta út fyrir að vera fjóss- og hlöðutóft Það styrkir og þá ætlan, að þar skamt frá í túninu er önnur rúst, þrí- skift, sem án efa er forn bæjartóft. Ilvortveggja rústin er niður- sokkin og óglögg. Fyrir ofan vesturtúnið er forn garðspotti milli lækja tveggja. Hann heíir verið svo þykkur, að hann hefir klofnað neðan til og svo sigið ofan í sjálfan sig, svo að hann iíkist næstum langri og mjórri tóft í fljótu áliti. Steinsliolt. Eigi vita menn af eyðibæjum á Biskupstungnafrétti fyrir heim- an Hvítá. En niðri í bygð, nokkru fyrir neðan, beina línu milli efstu bæjanna, Hóla og Brattholts, er eyðibýli, sem Steinsliolt heit- ir. Þar er nú alt blásið. Bærinn hefir staðið sunnan í litilli hæð,

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.