Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1905, Side 51
51
og hefír hleðslugrjótið úr honum hrunið niður, svo undirstöður sjást
eigi svo gjörla, að húsaskipun verði ákveðin. Eigi vita menn, hve-
nær þetta býli hefír lagst í eyði.
Um leið skal eg geta þess, að norður frá Hólum heitir Ar-
brandsá og Árbrandshólmi. Þau örnefni minna á Ásbrand land-
námsmann og eru ef til vill kend við hann. En þá hefir s (í ás)
breyzt í r og hefir það víðar átt sér stað.
Laugartorfa.
í Árb. FornLfél. 1894, bls. 8, gat eg um þingstaðarmenjar á
Laugartorfu milli Helludals og Neðradals (sem fyrrum hét Neðii-
Haukadalur), og sló eg því fram, að þetta mætti setja í samband við
það, er Gmðmundarsaga biskups nefnir »lögréttu í Haukadal«. Gat
eg þess, að á torfunni hefði eg séð 2 hringa og fyrir víst 12 tóftir
er liktust búðatóftum, og að þar gæti verið fleiri, þótt eigi sæist,
því hrísið væri að vaxa. Aftur er Laugartorfa nefnd í fylgiriti við
Árb. 1899, bls. 36. Þar skýrir Daníel Bruun kapt. frá því, að hann
skoðaði þenna stað og sá hringana báða, en eigi sá hann fleiri en
5 tóftir aðrar, því hrísið hafði vaxið yfír hinar. Áleit hann þetta
fjárhúsatóftir og hringaná gjafahringa. Það mundi hann naumast
hafa álitið, ef hann hefði séð allar þær tóftir, sem eg sá þar, því
trauðla munu sjást 12 eða fieiri fornlegar fjárhústóftir á einum stað,
jafngamlar að sjá. Og auk þess var það lengi fram eftir öldum, að
á Suðurlandi voru engin hús gjör fyrir »útigangsperiing«. Mér þyk-
ir því, enn sem fyr, líklegast, að hér liafi verið þingstaður. Iíafi
það ekki verið, þá veit eg ekki hvað eg á að ímynda mér um þess-
ar tóftir. -— Þess skal eg .geta, að eg kom þangað í sumar, en gat
þá ekki séð nema annan hringinn og eina af tóftunum. Svo mjög
hefir hrísið vaxið.
7*