Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1930, Qupperneq 9
9
eða forskáli hans, fallið niður að gólfi. — Gólfið í vestari hellinunv
er miklu hærra nú en í eystri hellinuni, vegna sauðataðs á gólfinu;
er hæðin hér aðeins /*—1 m. Breidd beggja hellanna er framan
til 5,15 m. til samans, en hefur verið nokkru meiri niður við hið
upprunalega gólf. Inni við stoðina, sem er 5,50 m. frá gólfi eystra
hellisins, er breiddin 6,20 m. til samans, nefnilega í vestari hell-
inum 2,40 m„ stoðin 0.70 m., og í eystri hellinum 3,10 m. Stoðin er
um 50—60 cm. á hinn veginn. Hún er 5‘/2 m. frá gólfi vestari hell-
isins. Opið fyrir innan hana er 1 m að lengd og um 20—30 cm. að
hæð. Vestari hellirinn er að breidd við gólf innst 3,45 m. og hæðin
1,95, en nokkurt tað er á gólfi. Hann skáir í gafl. 3'/2—4 m. frá
gólfi eru skorur í báðum veggjum fyrir þverslá. Eystri hellirinn er
3,60 m. að breidd innst. Stallur er við gafl (sbr. 1 '). og svo sem hell-
irinn hafi verið breikkaður um það. Hæðin er hér 1,60 m. en mikil
skán á gólfi. Hellisbreikkanin byrjar um 7 m. frá gólfi vestari hellisins,
og þvi framar nokkru en stoðin er. Milliveggur hefur líklega aldrei ver-
ið framan-til og er hellirinn að mestu óbreyttur. Strompur er í eystri
hellinum, 3,50 m. frá gafli, 80—95 cm. að vídd neðst, ca. 1,50 m.
um miðju, en gengur svo saman í mjótt op (sbr. 2), í vestari hellinum
eru krotaðir upphafsstafir og ártöl frá siðari hluta síðustu aldar.
Þórunúps-hellar. Á Þórunúpi er hellir einn mikill2), langt nokk-
uð austur frá bænum, inn með læk, sem rennur þar fram hjá, og er
hellirinn fyrir norðan lækinn í brekku. Inngangur mót suðri. Forskál-
inn er hruninn saman og má þó smjúga inn undir bergið yfir for-
skálanum. Auðveldari inngangur er inn um smáhelli, líklega heyhelli,.
sem er við hlið hinns, fyrir austan hann; er hann að vísu líka fallinn
að framan, en stórt op er milli niðurhrunsins og bergsins og göng eru
úr þessum hellisskúta inn í aðalhellinn. Stutti hellirinn er að breidd
3,50 m. og hæð 2 m., en mold er á gólfi. Lengdin hefir líklega ekki
verið mikið meiri en breiddin. Hleðsla sést hægra megin inngangs
þess, sem verið hefur, og frá henni er lengdin 3,30 m. Strompur er
nærri við austurvegg og er fallinn saman að ofan, en sér þó upp úr^
vídd 75—85 cm. — M. Þ. o. fl. nýlegir stafir sjást hér. — Inngang-
urinn yfir í aðalhellinn er innst í vesturhlið við gaflinn. Hann er með
boghvelfingu og er að breidd við gólfið 1 m., en hæðin er við af-
hellinn 1,20 m. og við aðalhellinn 1,10 m., en í miðju 90 cm. — Að-
alhellirinn er að lengd 22.40 m. frá forskálahleðslu inn í smá-útskot,
sem étizt hafa inn í gaflinn. Hann er beinn og fallega lagaður, öld-
1) Á meðfylgjandi myndblöðum hér fyrir aftan. 2) Sbr. Árbók 1905, bls. 54^