Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1930, Page 14
14
Gaddstaða-hellar. Á Gaddstöðum eru 2 smáhellar. —
Nr. 1 er í suðvestur, kippkorn, frá bænum, höggvinn inn í dá-
litla brekku. Er nú ónotaður og er forskálinn hruninn og mikið af
mold runnið og hrunið inn í hellinn, einkum fremst. Hann er um 5
m. að lengd og ca. 2‘/2 að breidd, er lágur undir loft nú, svo að
ganga verður hálf-boginn. Við veggi innst sjást garðapallar beggja
vegna og yfir er hvelfing óhreyfð og laglega höggvin. Á suðurhlið eru
höggnir nokkrir upphafsstafir og ártölin 1779, 1891, búmerki: T
og fleira nýlegra. — Dyr snúa nú mót vestri.
Nr. 2 er i landssuður frá Gaddstöðum (nýju), góðan spöl frá
bænum. Hann er nú fullur af mold og sér aðeins litla laut þar sem
var inngangurinn. Hann var notaður fyrrum fyrir lömb og tók að
sögn um 20.
Hella-hellar. Á Hellum á Landi eru 2, eða líklega 3 hellar,
sem bærinn heitir eftir.
Nr. 1 er skammt fyrir norðan bæinn og er þar í hól i tún-
inu. Fram og vestur af opinu eða forskálanum er bvggður dálítill
kofi, nýlegur, hafður fyrir geymsluskemmu. Hann er að innanmáli
4,35 X 2,20 m. Austur úr norð-austur horni kofans eða norðurhliðinni
innst er byggður forskáli og er hann einnig nýlegur. Austurveggur
hans er 5,50 m., en breiddin er ca. 1,50 m. í forskálanum eru 10
breið (ca. 60 cm.) þrep og beygist forskálinn nokkuð eða niðurgang-
urinn vestur á við. Kofaveggurinn er við forskálann 1,70 m. og þrep-
hæðin ca. 25 cm. — Innar af forskálanum er til hægri (að austan-
verðu) skvompa mikil út undir bergið, sem hlaðið hefur verið upp
fyrir framan, upp að lofti, 5 m. langur veggur, með sömu stefnu og
suð-austurgafl kofans, og verður því 1,60 m. breiður stallur milli hans
og eystri forskálaveggjarins. Gegnt forskálanum gengur svo sem
horn fram á berginu og verður fjarlægðin 4,70 m. frá neðsta þrepi
og að horninu, en 2,50 m. að veggnum undir skvompunni frá þessu
horni. Myndast þannig dálítill afkimi eða krókur fyrir innan niður-
ganginn eða þó nokkuð til hægri. Er hér á strompur, ca. 1 m. að þver-
máli að neðan; er bergið ca. 30 cm. að þykkt hér, en þar yfir mold-
arlag eða hleðsla, um 2 m. að þykkt, og þar yfir grjóthleðsla, ca. 1
m. — í horninu eru 2 stór berghöld, og skorur hafa verið gerðar í
það, svo sem fyrir þverbitaenda, og sömuleiðis í bergvegginn á móti.
Er breiddin hér 3 m. við gólfið. — Beygjan helzt innaf niðurgang-
inum á suðurbergveggnum 4'/2 m., en síðan stefnir sá veggur nær
beint 8V2 m. til útnorðurs og hefur þar verið útgangur, en nú er
hlaðinn hér grjótveggur, 4'/2 m. á lengd og 2 m. hár, en op er frá