Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1930, Side 18
18
nýjan forskála, með 12 miklum þrepum; er hann suður-úr austur-
enda hellisins, en áður hafði verið forskáli austur og upp úr austur-
endanum; var sá uppgangur óbrúkandi, var svo brattur og örðugur;
var því rifinn og lokað hellinum, ca. 1906—07. Nú er hellirinn hafður
fyrir lömb, rúmar um 50. Er trégarði á miðju gólfi. Gólfið er 8 m.
að lengd og 3'/2 m. að breidd og hæðin um 2,90 m. við strompinn,
sem er fallega sívalur og 75 cm. að þvermáli neðst; er hleðsla mikil
og gömul og mjókkar upp eftir sem venja er til. í þverskurð lítur
hellirinn hér um bil svo út sem 13, eru svo sem hvylftir miklar út
undir til beggja hliða. Innri endinn er bogamyndaður, en hinn nokkru
þverari fyrir, og gengur því forskálinn upp í boga. — Vinstra-megin,
(suðvestan-megin) hefur verið afhellir, eða má ske uppgangur, en þar
hefur verið fylt með grjóti og mold; er það op að breidd 1,60 m. og
er fullt svo hátt undir loft. (Sbr. enn fr. 14).
Yfir forskálanum eru þverspýtur, mæniás(ar) og smáspýtur út af,
og svo hellur lagðar á og tyrft yfir. — Forskála-veggirnir eru hlaðnir
upp úr torfi og grjóti á venjulegan hátt, mjög háir innst.
í þessum helli eru nokkur búmerki og upphafsstafir manna; virð-
ist mest vera frá 17.—18. öld Á suð-vestur-veggnum er elzt:
/T M 0 |iT5T K H • —Á hinum veggnum er innst: (íjpj , utar er
f . rr‘ ■ nog . kms- • , l . p •
fi-is ■ ’JPS’ $■ SIS ■ 'CP-Yzt
er f. — Innst á endanum, uppi á veggnum, er stór kross, 30 cm. a&
hæð og 22 cm. að breidd, og annar minni. Sbr. sóknarl. 9, N.
Ofar og yzt, gegnt útganginum, er enn eitt búmerki:
Árbæjar-hellir. í Árbæ er einn hellir, gerður af Jóni bónda Jóns-
syni árin 1914—16 við gilið fyrir utan bæinn. Aðalhellirinn er fyrir lömb,
rúmar 100, er 17 m. að lengd og 4 m. að breidd og um 2 m. að hæð.
Út úr til hægri er gangur í afhelli, hlöðu mikla, er tekur um 200 hesta
(til 250) og er 14 álnir að lengd og 7 álnir að breidd. — Smástúka
fyrir hrúta er út-úr vinstra megin. Hæð 6 álnir, en á að dýpkast.
Hellirinn er gerður inn í brekku og er forskálinn með járnþaki, jafnvíður
hellinum, og þil fyrir með 2 dyrum og glugga á milli. — Upp úr hlöð-
unni er strompur eða op kringlótt, og er heyið látið þar niður um.