Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1930, Síða 19
19
Ægissíðu-hellar. Á Ægissíðu eru 12 hellar og allir gamlir
Skal þeim nú nokkuð lýst.
Nr. 1. Helhr vestast í bæjarhúsunum, og stendur smiðja yfir hon-
um. Var inngangur í hann áður hjá smiðjudyrum, en Jón Guðmundsson
gerði innganginn svo sem hann er nú, inn í smiðjuna. Hellirinn stefn-
ir í austur og vestur, en forskálinn beygist í suður, inn í smiðjuna, og
eru dyr hennar móti suðri. Strompar voru 2, annar mjög innarlega
og all-víður, ca. 70 cm. að þvermáli neðst, hinn lítill, utar. — Innst
hafði hellirinn hrunið niður og var þar fullur af mold, en Jón bóndi
hefur hreinsað það að mestu og hlaðið upp í endann1). Opið er nú
gert yfir og er haft til, að láta hey niður-um; er það sporöskjulagað,
allvítt, IV2 — 2m. að þvermáli. Er haft hey í hellinum öllum nú, en áður
var haft í honum eldsneyti (skán). — Forskálinn er með 4+3 þrepum
og síðan hallar mjög niður að gólfi í aðalhellinum; þar er gólfið fremur
hallalaust, en í það eru gerðar víðar holur 5, allmiklar, 4 í röð með-
fram suðurhlið innst og 1 innst við endann; út frá henni hafa verið
gerðar 2 grunnar holur, er hin innri nú nær horfin, en hin er orðin
mjög víkkuð. — Yzt við suðurhliðina er ferskeytt gryfja eða hola,
0,95—1 m. að þvermáli; er hún ný. — Yzta kringlótta holan er 1,10
til 1,25 m., næsta er 1,50—1,65 m., þriðja er 1,30—1,40 m. og tvær
þær innstu hafa verið ámóta stórar; er nú sem stendur heybyngur
yfir annari, en hin sést að eins hálf út-undan veggnum hlaðna.
Holur þessar eru alldjúpar, sú næst-innsta við suðurhlið er t. d.
60 cm., en sú næst-yzta (þar hjá) 75 cm. í miðju. — Hellirinn er
nokkuð óreglulega myndaður; framparturinn allur þrengri og lægri,
en innri parturinn nokkuð misvíður og hefur fallið mjög úr norður-
hliðinni innst og loftinu þar, fyrir innan innri strompinn. Uppi yfir
kringlóttu holunum hafa verið gerðar hvylftir í vegginn. Lengdin er
nú alls 15 m., en hinn mjórri, hallandi framhellir er 4 m. þar af;
aðalhellirinn er 10 m. að lengd og um 3,15 að breidd (sbr. 15—16).
Jón álítur að kerin eða holurnar hafi verið gerðar til að láta
standa í þeim sýruker eða skyrsái; í næst-innstu holunni fann hann
eirkersbrot, sem hann gaf Þjóðminjas. (nr. 6213; sbr. Árb. 1900, bls. 7).
Nr. 2. Stór heyhellir vestur úr fjósinu, rúmar um 400 hesta af
heyi; er nýr forskáli hlaðinn upp og 8 þrep niður að ganga. 1 stromp-
ur, nokkru innar en yfir miðju; hefur verið nokkuð vikkaður, svo að
sáta kæmist niður, og er nú um 80 cm. neðst. Hellirinn er mjög mis-
breiður og gólfið mjög ójafnt og hallar yfirleitt norður og austur.
Hellirinn er að lengd 21 m. Innst er svo sem kór eða stúka, um
1) Jón áleit að dyr hafi verið upp úr þessum endanum áður fyrri.
2*