Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1930, Page 20

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1930, Page 20
20 2,50 m. innst, 2,15 m. utar; síðan smávíkkar hellirinn og utantil eru skvompur miklar til beggja hliða, svo að víddin verður við gólfið 8—8l/2 m. Hæðin er um 3 m., dálítið meiri utan-til, en miklu minni í stúkunni, þó um 23A m. þar. Hefur verið byrjað að gera stromp upp úr henni, en hætt við. Á gaflinum innst er kross, svo sem upp- hleyptur, ca. 2—3 cm. að breidd hvor armur, en hæð krossins er 30,5 cm. og breidd 17,5 cm. Sbr. 18. Nr. 3. Við hesthús fyrir austan fjósið, hinumegin við traðirnar. Hesthúskampurinn hægramegin er forskálinn og er 12 allmikil þrep niður að ganga. Var hellir þessi fullur af mold, en fannst við að hestur rak niður fótinn þar sem nú er strompurinn. Jón bóndi hefur höggvið djúpan brunn í hellisgólfið og komið þar fyrir dælu (Ólafs Hjaltesteðs) til þess að dæla vatni upp eftir pípu, upp í hesthúsið. Heitir hellir þessi því »Brunnhellir« (sbr. »B.H. 1909« á vegg hans). Hann er óreglulega kringlóttur og að eins um 3—4 m. að þvermáli og 2—3 m að hæð. í honum er geymdur matur, saltfiskur, rófur og þess háttar. Nr. 4 er litlu austar á túninu. Er hann og lítill og kringlóttur en forskáli allmikill, með járnþaki yfir, er gerður fram af honum. Hann er nú hafður fyrir kindur og er garði á miðju gólfi. Hellirinn er all- djúpt í jörðu og eru 6 þrep mikil niður í hann. Hann er um 3—4 m. að þvermáli og laglega hvelfdur, um 2 m. að hæð í miðju og er þar strompur, bergið er um V* m. að þykkt og síðan hlaðið um 1 m. upp, ca. 60 cm. neðst, en að eins ca. 10 cm. efst. Nr. 5 er kippkorn suðaustar á túninu, er hann með 4'li m. löng- um forskála og er í honum 1 þrep og allmikill halli niður. Efst er forskáli ca. 6 m. að lengd, en hellirinn er sjálfur 13 m. að lengd frá pallinum, þar sem forskálagólfið hættir, og tréstigi er lagður niður á hellisgólfið. Úti við suðausturvegginn og innst er garði, og hellur á rönd lagðar fyrir framan. Breiddin er framan-til, neðst við gólfið, ca. 3,50—3,70 m., en allur innri hlutinn er miklu breiðari og hærri, um 4 m. há hvelfing og strompur kringlóttur upp úr, nær 1 m. að vídd neðst og ca. 60 cm. efst, höggvinn í gegnum ca. 1 m. þykkt berg, og þar yfir er ca. 70 cm. þykkt moldarlag og hleðsla. Hann er bogamyndaður í endann innst og skvompa mikil út-undir við gólfið og rnoldarvegginn. Verður breiddin mest hér 7,20 m., eða meira, ef mold væri hreinsuð úr skvompunni við gólfið, undir vestur-veggnum. Höggför sjást hér ekki að ráði, en mjög mun hafa sprungið úr hell- inum og mun hann vera manngerður að öllu leyti. — Hér var sem milligerð framan-til og eru leifar af henni enn. Nr. 6 er miklu norðar á túninu, norður við rásardæld, sem þar
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.