Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1930, Qupperneq 23
23
var uppalinn. Innst í aðalhellinum er og grjót- og moldar-hleðsla, og þar
kvað einnig hafa verið uppgangur áður fyrri. Nú er þessi aðalhellir
20 m. að lengd og 3,3—4,40 m. að breidd. Varla manngengur fremst,
en hærri innar. LJt úr honum framan-til er gangur út til hægri, út í
hinn eystri hlutann, sem svo Iiggur í olboga út til forskálans, sem er
samhliða forskála aðalhellisins, og eru 9,50 m. í milli. Strompar eru
alls 4, 2 eru á aðalhellinum og 1 á stúkunni, og hinn 4. á gangin-
um milli hellanna. — Á aðalhellinum er 3,80 m. langur forskáli og
er 3 stór þrep niður að ganga. Forskálinn er með gamalli hleðslu
og mæni yfir, og hellum þakinn og þökum. — Garðinn í framhellin-
um er nú á miðju gólfi, en í miðjum hellinum eru gamlir garðar, af-
lagðir, við vegginn. — Gegnt ganginum austur-úr er skvompa mikil
út í vegginn í aðalhellinum, og hefur þar má ske verið gangur yfir
í vestari hellinn, gjögrið, sem áður var getið, því að mold er hér
fyrir og hefur líklega hrunið niður hér. Skvompa þessi er að breidd
2,50—3 m. Stúkan innst (vestanmegin) er að lengd 4,60 m. og breidd 3
m., fremur há og vel hvelfd, sjá 24. Aðalhellirinn er með ólíkri hvelf-
ingu, víðast svo sem 25. Gangurinn austur-úr er að lengd 6,40 m. og
er nú garði í honum miðjum. Ný fyrirhleðsla er við aðalhellinn. Gang-
urinn vel manngengur, nema austast, við afhellinn innar af eystri
forskálanum; þar er lægra haft og afhellirinn allur h)gur, 1,40 m.
Lengd afhellisins er 4,70 m., breidd 3,50 m. Breiddin í milligangin-
um er 2,90—3,25. Lögun: sjá 26. Forskálinn er með 7 þrepum og er
hann um 5 m. að lengd, með flötu þaki yfir, hellur á þverspýtum.
Forskálarnir eru víðast tæpur m. að breidd.
Brekkna-hellar. Á Brekkum eru 2 hellar gamlir austan í tún-
inu, grafnir inn í brekkuna og er gangur höggvinn á milli þeirra;
báðir hafa þeir verið notaðir fyrir lömb, en þykja rakir og kaldir og
eru auðvitað dimmir. Fylgir sinn hellirinn hvorum jarðarparti að
notkun til, en hinn nyrðri, sem er minni, hefur ekki verið notaður
siðustu 3 vetur, og hinn á nú að hætta að hafa fyrir lömb, heldur
hey, og hafa þá lömbin í smáhlöðu, sem hefur verið grafin niður og
byggð upp við hlið hellisins og er gangur á milli hlöðunnar og
hellisins. Sá hellir virðist hafa verið ekki alls fyrir löngu víkkaður
nokkuð og hækkaður. Við hann er hlaðinn upp all-langur forskáli,
5,40—6 m. langur, og er fremur nýlegur. — Hellirinn er að lengd
10,30 m. og breidd 3 m. Hinn nyrðri er nær kringlóttur og heldur
lægri, þvermál 5—5,80 m., og 3,10 m. langur forskáii fram-af; 2 all-
há þrep. Letur sést ekki neitt gamalt.
Á syðri hellinum er allvíður strompur innan-til við miðju. Er