Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1930, Page 33
33
anverðu í þeim hlutanum, allt að uppganginum, sem myndar rétt
horn í eystri hlutanum (undir járnþakinu). Að norðan gengur fram nef
i landsuður. Vesturveggurinn er 5,40 m. að lengd, en austurveggur-
inn 6,40 m. Bilið milli þeirra að sunnan er 6,70 m. (að uppgangin-
um) -f 2,40 (uppgangurinn), en bilið að norðan er 2,20 (nefið)
-þ 5,60 (= 7.80), en ekki í beina stefnu. — Fyrir austan nefið, sem
er næstum eins og stoð (þrístrend), gengur afhellir út til norðurs,
6—7 m. langur, og er nú uppgangur úr honum upp í fjósið, en hann
er nýlegur og hefur fundizt, að afhellir þessi hefur verið miklu lengri,
náð norður fyrir fjós, og gafl hans hefur fundizt i hlöðu, sem er fyr-
ir norðan fjósið; er allur sá partur nú niðurhruninn og fullur, nema
þar sem hlaðan er nú; hún stendur í endanum á honum og er þar
smá-stúka austur úr honum. Hefur hann, að því er mælt verður nú,
verið 19 m. lengri1). — Strax fyrir norðan nefið er smá-stúka til
vesturs, IV2 m. að lengd inn og 1,70 að breidd. — Litlu innar er
smá-hilla, gerð út í bergið sama-megin, en hins vegar er önnur smá-
kytra innst, og er þar nú nýlegur brunnur í, en utar er, gegnt stúk-
unni að vestan, 2,80 m. breið stúka og stoð mikil fyrir framan hana.
Fyrir austan hana og stoðina er aftur önnur stúka eða afhellir, lægri
og mjórri, með likri stefnu og stærri afhellirinn, og er nú austurvegg-
urinn hlaðinn fyrir op hans að nokkru leyti. Bilið milli nefs og stoð-
ar er ca. 23/4 m., en opið á litla afhellinum er neðst 2 m. — Stromp-
ar eru 2; annar á stærri afhellinum, milli stúknanna, en hinn á miðj-
um litla afhellinum, austur-af stóru stúkunni. — Hæðin á aðalhellin-
um er 3 m. rétt innan-(vestan-)við hvelfingarröndina, en ca. 60—70
cm. eru sagðir niður að bergi, moldarlag gamalt. Stærri afhellirinn
er að hæð álíka og aðalhellirinn og hvelfingin hálfhringmynduð. Litli
afhellirinn er að eins 1,50 m. yzt (syðst) og í kimanum innst 1,10;
í honum (kima þeim) fannst forn brunnur, og steinn skorðaður yfir
þveran kimann á gólfinu fyrir framan brunninn. Hæðin á stúk-
unum er ca. 2—2 '/4 m. — Á stoðinni eru krossar og nýlegt krot,
ártöl (1901, 1904), upphafsstafir o. fl. Á nefinu vottar fyrir gömlu
letri, sem er nær öldungis afmáð, og þar fyrir ofan er gamall kross.
Neðarlega á hvelfingunni að sunnanverðu er og gamalt krot, tölu-
stafir, upphafsstafir, búmerki, bogamyndir 2 o. fl.
VIGFVS Eþríksson, hér í Ási, bóndi). Austar og
nokkru neðar stendur 1756 og þar
fyrir framan:
sem er eins konar búmerki, og er
1) 1 þessum hluta fundust hlóð og aska.
3