Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1930, Síða 36
36
er nokkuð misjöfn, víða um 5-5'lz m. — All-langur forskáli, með 8
þrepum í, er ca. 2xh m. frá norð-austur enda. Trégarðar 2, með Iitlu
bili milli, inn-af innganginum, eru nú í þessum hluta hellisins, en
áður hafa sem sagt verið hellujötur úti við veggi. — í suð-vestur-
hlutanum er á norðurveggnum, rétt fyrir innan afhellinn, ýmislegt krot,
upphafsstafir og ártöl: A 178U, 1794, 1801, 1802 o. fl. Sbr. sóknal. 10.
HellatúnS'hellar. í Heliatúni eru 5 hellar.
Nr. 1—2 eru saman og breiður gangur í milli. Annar þeirra er
nær bænum: Nr. 1. Forskáli við hann er í vesturenda og snýr hellir-
inn nær austur og vestur; eru 7 þrep mikil ofan að ganga. Forskál-
inn stefnir dálítið til suðurs og hellirinn þó enn meir. Hann er beinn
og fallega gerður; hvelfingin nokkuð flöt. Allur vestari hluti hans
er hafður fyrir ær; eru pallar við báða veggi og hellur á rönd fyrir
framan. í eystri endanum eru höfð lömb og er gert á milli með torfi
og fleiru. Þar er og hellujata við norðurvegginn fyrir austan inn-
ganginn yfir í nyrðri hellinn, en út-undir að sunnanverðu er hér út-
skot undir bergið og veggur þó hlaðinn innan-við það og jata úr
tré við hann, en fyrir utan hann er nýlega gerður svelgur mikill til
að veita burt vatni, er vildi ganga upp í hellinn. Við vesturendann
er nýlegur brunnur í horninu að norðanverðu, en í austurenda er
opið og hlaðinn þykkur veggur með allmiklum 4 rúðna glugga í. —
Berghald er yfir jötunni i eystri endanum að norðanverðu, líklega
til að binda við stórgrip. Gólfi og lofti hallar nokkuð niður og vest-
ur í austurendanum, og allt er gólfið þar litlu hærra, en skán og
mold er á öllu gólfinu. í vestari hlutanum er lægra undir hvelfinguna,
um vestari strompinn og þar fyrir vestan, en um hinn eystri hluta
hellisins, en ekki er takandi mark á því, vegna gólfsins. Lengdin er
frá neðsta þrepi í vesturenda að veggnum í austurenda 22 m. For-
skálinn er 3—4 m. að lengd1)- Breiddin er rétt fyrir ofan jötur 3,40
m.; eru, sem venja er til, smá útskot beggjavegna þar sem þær eru; en
milli jatna eru 2lk m. Hæðin er á milli vestari stromps og vestur-
enda 1,65 m., á milli strompa 1,80 m., í austurenda miðjum 1.85 m.
Þverskurður verður svo sem 37.
Þá er eystri hellirinn, nr. 2. Hann er miklu víðari og hærri, en
beinn og reglulegur. Hann er með miklum forskála ca. 1 m. austar
en glugginn er á vestari hellinum, og eru 6 stór þrep niður að ganga;
lengd forskálans er 2Va m. að austanverðu og litlu meiri að vestan-
verðu. Hellirinn stefnir nær i austur-landnorður, en forskálinn liggur
1) Mjóstur efst og fremst, og styttri efst en neðst, eins og algengt er.