Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1930, Síða 37
37
nær í landnorður og útsuður. Helli þessum er nú skift i 2 hluti.
Eru í fremri partinum jötur við suðaustur-vegginn og millivegginn,
sem er úr torfi, ca. 1 m. að hæð og með dyrum við suðaustur-vegg;
en innri hlutinn er að vestanverðu hafður fyrir hey. Stór op eru á
báðum pörtum; er hey látið ofan um innra opið, en hið fremra (ca.
l'/sm. að vidd neðst) er strompur, með mjög þröngu opi efst, og er
ca. l'/3 m. að hæð. Að austanverðu er stórt útskot undir bergið i
innri hlutanum og eru þar jötur undir, og lambakró gerð þar af
meðfram þeim veggnum; dyrnar á milligarðinum eru inn í hana. Út-
undir bergið hins vegar hefur og verið útskot, en er nú fyllt upp.
Innst hefur það þó ekki verið og er þar gamall jötupallur, sjálfgerð-
ur, og sömuleiðis fyrir gafli. Hvelfingin uppi yfir er nú mjög óreglu-
leg og hefur ekki upprunalega lögun; líklega hefur hrunið eða verið
sprengt neðan úr henni; er þetta h'kt og hellirinn á Berustöðum,
gímaldið mikla. — Ef til vill eru þessir hellar að þessu leyti, eða
þessir óreglulegu hlutar þeirra, náttúrunnar verk, en þá siðar lagaðir
til af mönnum og manngerðir hellar tengdir við þá. Hellir þessi er
að lengd 12‘/2 m., breiddin um milligerðina 5 m., en um útskotið mezt
6 m. Hæðin er á milli opanna 23/< m. — Á vesturveggnum eru upp-
hafsstafir, ártöl o. fl.: S I S I V, 1761, 1760, Þ A S, V S, 1748, 1760,
E. S. S, 1640 (?, eða ’46), S S, H, 1717 (1777?), S O S, S T, o. fl.
Á berginu yfir innganginum er og óljóst krot. — Skammt fyrir inn-
an þrepin er nýlegur brunnur. — Nú (2. ágúst 1917) eru rokkar og
meisar í þessum helli, sömuleiðis matvæli, hausar, ostur o. fl.
Þá er að lýsa milliganginum á milli hellanna. Hann er að öllu
leyti manngerður, en í krók, og heldur óreglulegur. Næst austurhell-
inum, þar sem hann gengur inn til vinstri handar, strax innan-við
þrepin, er hann beinn og reglulegur og eru jötur út-undir beggja
vegna; lagleg hvelfing er yfir; lengd ca. 4>/2 m., breidd 3 m. og
hæð í miðju 1,90 m. Má að vísu líta svo á, að þessi hlutinn sé í
rauninni afhellir út úr austurhellinum. Þar vestur-úr er lægri (og
mjórri ofan-til) gangur, hæð austast 1,60 m., vestast 1,10 m., og beyg-
ist suður á við. Verður nef að sunnanverðu og þó skot nokkuð í
því að vestanverðu neðst, en að norðanverðu er hér neðst mikil
skvompa út-undir vestast, og er gerður úr henni svo sem sérklefi
(fyrir hrúta) með milligerðum; er hellujata i ganginum við milligerð-
ina, sem í honum er, og bil það, ca. 1 m., sem er að norðanverðu í
í ganginum, gegnt nefinu; í klefanum er að eins 3U—1 m. undir loft
og hann er likt og 3lt úr hringfleti, sem er með ca. 2 m. löngum geisla.
Þverveggurinn (austurkampur hans) í vestari hellinum myndar að
nokkru leyti milligerðina milli hrútaklefans og vesturhellisins. Er þetta