Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1930, Side 38
38
harla óreglulegt og verður illa lýst vel. Þessir samliggjandi hellar 2
eru í túninu, rétt fyrir norðan bæinn, eða litlu austar þó. Á milli
þessara 2 hella og bæjarhúsanna er þriðji hellirinn og er hann
byrgður. Hann er sagður nýlega fundinn og hefur verið farið ofan í
hann og mokað dálitið upp úr honum, en að mestu leyti kvað hann
enn vera hálf-fullur af mold. Hann er sagður langur.
Fyrir norðan og norð-vestan túnið og hins vegar við mýri, er
þar verður á milli, eru hólar og hryggur eða bali, sem í eru 2 hellar
og smágjögur. Nr. 3, hinn austasti þeirra1), er með litlum forskála,
hlöðnum úr »kekkjum« (kökkum, moldarhnausum), og eru 5 þrep i.
Hann stefnir i norður, og er 8 m, að lengd. Austurveggurinn er boga-
myndaður og er lágt út undir hann þar; skáir loftið nær niður að
gólfi; en við vesturvegg er fremst lítil stúka, lág og mjó, um 1,50
m. að lengd, 1,25 m. að breidd og 1 rn. að hæð fremst. Þar fyrir
innan er svo sem önnur stefna á veggnum, en brátt verður fyrir af-
hellir, sem nú er hruninn, og moldarbingur inn úr. Síðan stefnir áfram
eins og verður úr afhellir, sem nú er hálf-lokaður af öðru moldarniður-
hruni, er virðist komið þar niður um stromp, sem nú er fullur, og er
sá hellir hálf-fullur af harðnaðri moldarleðju. Öll þessi stefna hefur
svo sem sérstaka hvelfingu og er lægra undir ávalahrygg, er verður
á milli hvelfinganna; er þetta líkt Vatnsdals-hellunum samliggjandi.
— Innan við þessa afhella og stúku er nýhlaðinn moldarveggur og
hellujata gerð við hann að innanverðu að endilöngu. Breiddin frá
torfveggnum og yfir þveran hellinn er 4'h m. Hæðin er mest um
2,10 m., hjá mjóum strompi (40—50 cm. að vídd), sem er nálægt
miðju, en lægra er undir hvelfinguna, ca. 1,60 m. — Afhellirinn inn-
af er líklega um 5 m. að lengd og 3 m. að breidd. Sjálfsagt ætti að
moka hann út og hlaða fyrir niðurhrunið, opið yfir í fremri af-
hellinn.
Nr. 4 er litlu vestar í balanum. Hann er með lengri forskála og
eru 6 þrep í, en 3 hin efstu eru ekki meiri en 1 hinna. Hann er víð-
ur og allhár, en hruninn innst, og er lengd að niðurhruninu 8‘/3 m.
Breidd er innst 4'/2 og hæð 1,40—2'U. Hellujötur eru beggja vegna.
Hvelfingin er fremur flöt og lækkar innar-eftir. Úti undir syðra vegg,
fremst, er nokkuð grafið, en út-frá að norðanverðu, framan-til, gengur
víður og hár afhellir. Hann hefur að líkindum hrunið innst og hefur
nú verið mokaður upp þar, grafinn dýpra niður innst, hlaðnir veggir
upp fyrir innan hvelfinguna og sett járnþak yfir og gerð þannig hey-
hlaða. Afhellir þessi hefur líklega verið um 6'U m. að lengd, 3,85 m.
1) Nefndur Bolhellir.