Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1930, Page 56

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1930, Page 56
56 eru hinir, sem hann segir oplausa og allukta frá upphafi. Tilefnið til þeirrar sagnar kann að hafa verið það helzt, að forn, manngerður hellir, einn eða fleiri, hefur fundizt luktur af storkinni leðju og mold, og hulinn grassverði í grónum hól, verið tekinn upp aftur, hreinsað- ur og ef til vill víkkaður eða stækkaður um leið. — Af frásögninni í jar- teinabókinni, sem getið var hér að framan má sjá það, að (manngerðir) móbergshellar hafa verið til í Odda á ofanverðri 12. öld og þá senni- lega víðar. — Kann að hafa verið hætt að nota slíka hella síðar sums staðar einhverra orsaka vegna, og þeir fallið í gleymsku og falizt í jörð á síðari öldum, unz þeir fundust aftur og voru endurbættir á 18. öld. Víst er það, að sums staðar hafa gamlir hellar verið teknir upp aftur á 19. öld, einkum á Ægissíðu, svo sem skýrt hefur verið frá hér að framan, hellar, sem virðast öldum saman hafa verið ónot- aðir og orðið fullir eða hálf-fyltir af aur og mold, sem borizt hefur í þá með vatni og vindi. Kann uppmokstur og endurmyndun slíkra hella einhvers staðar á 18. öldinni að hafa gefið tilefni til frásagnar- innar um jarðhólfin í hólunum, sem menn brutust ofan í og gerðu sér úr hella. — Hins vegar er þess að geta, að það á sér engan veginn stað um alla þessa hella, að þeir séu í hól. Víða eru þeir gerðir í hól eða í brekku, af þeirri eðlilegu ástæðu, að þar hagaði betur til; þurfti þar ekki að grafa eins djúpt til að fá nógu þykkt og traust þak, og hægra var þar að koma frá sér, út og upp úr hellinum, því sem höggvið var laust og ryðja þurfti burt. — Að því er snertir tómhljóðið (»dump- ende eller hule Lyd«) í hólunum, sem sé til marks um það, að þar sé tóm, alluktur hellir neðanjarðar, þá er þess að geta, að slíkt hljóð heyrist víða í móbergshólum, er stappað er á þá, og mun ekki or- sakast af neinu verulegu tómi í þeim, svo sem sumir alþýðumenn, einkum unglingar, hafa getið sér til. Það getur bulið töluvert í mó- berginu, þótt enginn hellir sé undir. En eins og áður var sagt, kunna menn sums staðar að hafa fundið forna og týnda hella af tómahljóð- inu frá þeim og síðan tekið þá upp aftur, og sumir ef til vill haldið, að þessir hellar væru myndaðir af náttúrunni. í fyrstu grein sinni um hellana, greininni um hellinn á Vestri- Geldingalæk (Árb. 1900, bls. 5—7), er Brynjúlfur Jónsson á báðum áttum um uppruna þess hellis, segir, að »það sýnist ótrúlegt, að menn hafi höggvið hellinn út«, en segir einnig, að hann hafi þó þau »séreinkenni, sem næstum ótvírætt bendi á mannaverk«. En í næstu greininni, um manngerðu hellana undir Eyjafjöllum, segir hann (Árb. 1902, bls. 28): »Nú þykist ég ekki lengur í vafa um það, að þessir umræddu hellar, — og þá Geldingalækjar-hellirinn líka, — séu af mönnum gjörðir, að mestu eða öllu leyti«. En síðar kemur hann
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.